Hetja Ástralíu (í hvítum bol) réðst á annan hryðjuverkamanninn og afvopnaði hann með berum höndum.
Gyðingahátíð með 2.000 þátttakendum breyttist í blóðbað þegar byssumenn hófu skothríð á mannfjöldann á Bondi-ströndinni í Sydney. Að minnsta kosti tólf voru myrtir áður en óbreyttum borgara tókst að stöðva einn hryðjuverkamanninn með berum höndum. Skotárásinni er lýst sem hryðjuverkaárás – og hefur vakið hörð viðbrögð bæði í Ástralíu og í heiminum.
Vopnuð árás á Hanúkkah-veislu gyðinga á Bondi-ströndinni í Sydney á sunnudag endaði með því að óbreyttum borgara tókst að yfirbuga og afvopna einn gerandann með berum höndum. Atvikið hefur vakið hörð viðbrögð að því er The Telegraph greinir frá.
Fyrsta tilkynning kom klukkan 18.40 að staðartíma sunnudagskvöld, þegar mikill mannfjöldi var á ströndinni. Mörg vitni segja frá skelfilegum aðstæðum, þegar fólk gerði sér grein fyrir því sem var að gerast og tvístraðist í allar áttir. Talið er að skotárásin hafi varað í um það bil tíu mínútur. Mikið af myndböndum frá hryðjuverkinu eru á samfélagsmiðlum. Hér að neðan má sjá nokkur þeirra með tveimur svartklæddum hryðjuverkaböðlum sem skutu á hátíðargesti Gyðinga.
Fólk byrjaði að hlaupa um allt á ströndinni. Það var algjör paník sagði Elizabeth Mealey við ABC News.
Jeremey Leibler formaður Sambands Zíonista í Ástralíu sagði að þúsundir voru samankomnir á staðnum.
„Um 2 000 meðlimir í félagi okkar héldu upp á Hanúkkah og við kveiktum fyrstu ljósin á Bondi ströndinni.”
Breskir miðlar hafa birt margar myndir af öðrum hryðjuverkamanninum. Samkvæmt upplýsingum ABC News sem vísar í heimildir lögreglunnar, þá er annar morðhundurinn 24 ára Naveed Akram til heimilis í suðvesturhluta Sydney borgar. Lögreglan hefur gert húsleit á heimili hans.
Margir lögreglu- og sjúkraliðsmenn eru enn á staðnum. Myndir frá svæðinu sýna þegar sjúkraliðar vinna að fullum krafti við aðhlynningu særðra á grasvelli við ströndina.
Hetjudáð
Á einu myndbandi sést hvernig óvopnaður maður ræðst á einn hryðjuverkamanninn og nær að taka byssuna af honum.
More shocking footage from #Bondi Beach attack in #Sydney pic.twitter.com/H9DCfn5MO1
— Nasem Allam (@nasemallam) December 14, 2025
Einnig voru teknar myndir af flygildum sem sýna skotbardaga á milli hryðjuverkamannanna og lögreglunnar
Báðir morðhundarnir voru skotnir af lögreglu – annar lést á vettvangi, hinn var handtekinn.
The Telegraph greinir frá því að einn eftirlifandi Helfararinnar var drepinn þegar hann tók kúlu sem annars hefði farið í konu hans. Hjónin fluttu frá Úkraínu til Ástralíu og áttu tvö börn og 11 barnabörn. Laris Kleytman sagði að eiginmaður hennar Alex hefði risið upp til að vernda hana og hefði verið skotinn í höfuðið. Þau lifðu sem börn af Helförina og núna enduðu Gyðingamorðhundar líf Alex.
