Í viðtali við Arnar Þór Jónsson, formann Lýðræðisflokkinn, nýlega, þá benti Arnar Þór á þá staðreynd að lúxusbílasalinn Bentley hefði verðlaunað Bentley-umboðið í Kænugarði ár 2025 sem þriðju bestu söluskrifstofu Bentleys í Evrópu. Arnar Þór benti einnig á að hluti þess fés sem íslenskir skattgreiðendur greiða til stríðsreksturs í Úkraínu fari beint í vasa moldríkra stríðsherra sem græða á stríðinu. Þeir kaupa síðan gullklósett, lúxussnekkjur og lúxusbíla til að fjármagna eigið lúxuslíf á meðan úkraínskum hermönnum er slátrað á vígvellinum. Þrátt fyrir stríð jókst fjöldi Úkraínumanna sem greiða „lúxusskatt” um 38% árið 2024.
Þjóðólfur bað gervigreindina að upplýsa bílasölumál í Úkraínu sér í lagi eftir ár 2022. Gögn benda til mikillar aukningar 2023–2025 og sér í lagi ár 2025 en þá bókstaflega sprakk eftirspurnin, þegar jafn margir lúxusbílar voru fluttir inn eins og samanlagt á árunum 2022-2024. Þá varð einnig mikil aukning í sölu venjulegra bíla ár 2025 sem jókst 17% miðað við árið áður.
Innflutningur lúxusbíla til Úkraínu:
- 2022: ~2.300 bílar
- 2023: ~4.852
- 2024: ~4.938
- 2025: ~11.998

Innflutningur lúxusbíla sem hlutfall af heildarinnflutningi bíla meira en tvöfaldaðist ár 2025

Bílainnflutningur til Úkraínu hefur stöðugt vaxið, þrátt fyrir stríðið

Mest seldu bílamerkin í Úkraínu

