65 „viðkvæm“ svæði í Svíþjóð

Nýju svæði hefur verið bætt við lista lögreglunnar yfir svo kölluð viðkvæm svæði í Svíþjóð eða á hermannamáli no go zone. Bláljósafólk fer ekki inn í þessi svæði nema að lögreglan sé búin að tryggja leiðir þeirra. Íbúar greina frá ofbeldi, hótunum og fjölskyldum sem neyðast til að flýja heimili sín. Á sama tíma aukast kröfur um að ríkið grípi til aðgerða áður en enn fleiri svæði tapast.

Lögreglan í Svíþjóð hefur birt nýja stöðuskýrslu um vandamálaríkustu viðkvæmu svæði Svíþjóðar. Alls eru 65 staðir skilgreindir sem viðkvæmir – 19 þeirra eru taldir sérstaklega viðkvæmir. Eitt nýtt svæði er á listanum: Granängsringen í Tyresö, þar sem glæpir hafa tekið við sér. Fyrir íbúana er tilkynning lögreglunnar engin frétt, heldur staðfesting á þeim veruleika sem þeir hafa búið við lengi.

Skutu með hríðskotabyssu á útidyrahurðina

Miðillinn Frelsisfréttir tók viðtal við Ulf Bejerstrand, íbúa í Granängsringen og hann segir ástandið einkennast af ótta, ofbeldi og hótunum. Hann segir:

„Einu sinni skutu þeir með hríðskotabyssu beint á útidyrahurðina. Fólk varð óttaslegið.“

Í stigahúsinu hótaði hópur manna öðrum nýlega með hníf. Lögreglan kom tímanlega á vettvang en gerendunum tókst samt að sleppa. Fórnarlambið kom frá Sýrlandi eins og ódæðismennirnir. Bejerstrand segir að fórnarlampið hafi pakkað saman eigum sínum og flúið húsið sömu nótt með konu og börnum. Maðurinn sagði: „Þeir vita hver ég er.“

Ástandið á svæðinu er dökkt og enginn þorir að segja neitt. Búðareigendur þora ekki að hrófla við ógnandi táknum eða veggjakroti.

„Þeim er sagt að ef þið fjarlægið það verður verslunin brennd til grunna. Þá þora þeir ekki að gera það.

Lögreglan segir að glæpastarfsemin í Granängsringen sé rótgróin og viðvarandi og þess vegna flokkast svæðið sem viðkvæmt.

90% glæpa myndu hætta ef refsing hefði áhrif á fjölskylduna

Bejerstrand telur að skipta verði um lögreglustjóra og fá einhvern með raunverulega reynslu:

„Okkur vantar lögreglu sem hefur verið úti og handtekið fólk, ekki einhvern afgreiðslumann. Ef þú ert löghlýðinn máttu vera í Svíþjóð. Ef ekki, þá ferðu út.

Hann vill að hægt verði að vísa allri fjölskyldunni úr landi ef einhver í fjölskyldunni fremur glæp:

„Ef það fær afleiðingu fyrir alla fjölskylduna að þú fremjir glæp, þá myndu 90% allra glæpa hverfa samstundis.“

60% allra skotárása tengjast viðkvæmu svæðunum

Samkvæmt sænsku lögreglunni tengjast 60% skotárása á árunum 2022 til 2024 viðkvæmum svæðum – annað hvort sem vettvangur glæps eða vegna þess að viðkomandi einstaklingar tengist þeim.

Lögreglan bendir á þörfina fyrir víðtækari aðgerðum samfélagsins til að snúa þróuninni við. En í Granängsringen velta margir fyrir sér hversu lengi fólk þarf að flýja heimili sín áður en eitthvað gerist.

Fara efst á síðu