AI-gerð mynd með Macron Frakklandsforseta, Zelensky Úkraínuforseta og Merz kanslara Þýskalands.
Glóbalistar Evrópu eru engir vinir Bandaríkjanna. Það er alltaf óþægilegt, þegar fólk talar illa um mann á bak við hann – en það getur einnig verið upplýsandi.
Í gær birti þýska Der Spiegel símtal milli Volodymyr Zelensky forseta Úkraínu og evrópskra leiðtoga sem var lekið til fjölmiðla. Og það sem við sjáum er sá ljóti veruleiki að evru-glóbalistarnir rægja Donald J. Trump Bandaríkjaforseta og teymi hans í þeim eina tilgangi að koma í veg fyrir að Zelensky taki þátt í friðarferlinu.
„Emmanuel Macron, forseti Frakklands, varaði við því að Bandaríkin gætu verið í þann mund að „svíkja“ Úkraínu og vitnaði í lekið afrit af símtali á milli evrópskra leiðtoga, þar sem þeir ræddu um hvernig vernda ætti Kænugarð.
Nánari upplýsingar um símtalið — sem átti sér stað á mánudag og þar voru Macron, Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, Alexander Stubb, forseti Finnlands, Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu og fleiri — birtust í þýska tímaritinu Der Spiegel og þar ræddu leiðtogarnir friðarviðræður undir forystu Bandaríkjanna við Kænugarð og Moskvu.“
Der Spiegel skrifar að Macron hafi varað við því að Trump muni „SVÍKJA Úkraínu.“ Franski forsetinn sagði við kanslara Þýskalands Merz og aðalritara Nató Rutte, að Washington gæti neytt Zelensky til að gefa upp landsvæði „án augljósrar öryggistryggingar.“
„Það er möguleiki á að Bandaríkin svíki Úkraínu varðandi landsvæði án öryggistrygginga“ sagði Macron, samkvæmt Spiegel og bætti við að „mikil hætta“ væri á ferðum fyrir Zelensky. Forsetaskrifstofan svaraði ekki strax beiðni Politico um athugasemdir. Spiegel greindi hins vegar frá því að Forsetaskrifstofa Frakklandsforseta hefði neitað í yfirlýsingu til þýsku miðilsins að Macron hefði talað um svik. „Forsetinn notaði ekki þessi orð“ sagði skrifstofa Macron, samkvæmt Spiegel.
„Þeir eru að leika leiki bæði við ykkur og okkur“ sagði Merz og virtist vísa til sendiboða Washington, Steve Witkoff og Jared Kushner sem er tengdasonur Donalds Trumps Bandaríkjaforseta en þeir áttu fimm klukkustunda viðræður við Vladimír Pútín, leiðtoga Rússlands, á þriðjudag.
Talsmaður Merz, Stefan Kornelius, sagði við Politico: „Samkvæmt reglu, þá get ég hvorki staðfest né tjáð mig um brot úr samtalinu.“
