Nýr varnarmálaráðherra Úkraínu, Mykhailo Fedorov (á mynd), hefur greint frá því að um tvær milljónir Úkraínumanna forðist herþjónustu í stríðinu gegn Rússlandi og að allt að 200.000 hermenn landsins séu í „óheimilu leyfi“ sem þýðir að þeir hafa yfirgefið stöðu sína án leyfis og eru á flótta.
Fedorov er yngsti maðurinn sem hefur gegnt embætti varnarmálaráðherra Úkraínu 35 ára gamall. Hann tók við af Denys Shmyhal, sem varð fyrsti varaforsætisráðherra Úkraínu og orkumálaráðherra vegna spillingarmálsins sem hefur neytt Volodymyr Zelenský forseta til að stokka upp í innsta hring sínum og ríkisstjórn.
Herlög Úkraínu banna öllum körlum á aldrinum 23 – 60 ára sem eru undir herþjónustu að yfirgefa landið. Þrátt fyrir þetta hafa margir flúið ólöglega með því að fara yfir landamærin gegnum skóginn til ESB, aðrir hafa dvalið erlendis frá því að stríðið hófst vorið 2022 eða fela sig innanlands.
Sögusagnir um lítinn bardagavilja og hátt flóttahlutfall hafa lengi verið á kreiki í Úkraínu, en það er fyrst núna með yfirlýsingum varnarmálaráðherrans Fedorovs sem úkraínskur embættismaður viðurkennir opinberlega umfang vandans.
Fedorov sagði í ræðu í úkraínska þinginu 14. janúar, fyrir atkvæðagreiðsluna um staðfestingu hans sem nýs varnarmálaráðherra, að tvær milljónir Úkraínumanna væru eftirlýstir fyrir að forðast herþjónustu, að því er bæði úkraínska Kyiv Independent og bandaríska CNN greina frá.
Að auki hafa 200.000 hermenn „horfið frá stöðum sínum“ við víglínuna. Úkraínski herinn hefur verið undir miklum þrýstingi í nokkur ár í tilraun sinni til að verja landið gegn miklu stærri og sterkari óvini, með hernaðarstuðningi frá nánast öllum Vesturlöndum. Þrátt fyrir þennan stuðning heldur Úkraína áfram að tapa stöðu í austurhluta landsins og stendur núna frammi fyrir sérstaklega alvarlegum vanda.
Nýi varnarmálaráðherrann fjallaði einnig um spillinguna innanlands í ræðu sinni á þinginu. Hann lagði áherslu á að spillinguna yrði að uppræta.
Þegar búið er að drepa karlana þá taka konurnar við
Í sumar benti Kyiv Independent, sem vitnaði í úkraínska fjölmiðla, á að úkraínski herinn hefði í fyrsta skipti á virkan hátt hafið ráðningu kvenna og tengist það drápum karla. Bæði flótti og óheimil fjarvera eru alvarlegir glæpir í Úkraínu og geta leitt til 5 – 12 ára fangelsis á stríðstímum. Að vísvitandi forðast herkvaðningu er refsivert, með mögulegum dómi allt að 3 – 5 ára fangelsi.

Fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar Fredrik Reinfeldt hefur komið fram í mörgum sænskum fjölmiðlum í hlutverki „öryggissérfræðings“ með þann boðskap að úkraínskar konur og karlar yrðu að vera tilbúin til að fórna lífi sínu fyrir frelsi sitt og fyrir vestræn gildi. Hann boðar hrá skilaboð glóbalista að Úkraínustríðið verði að halda áfram til síðast Úkraínumanns. Það er allt í lagi að skipa öðrum þjóðum að slátra sonum sínum og dætrum
