Wallenberg: Við erum ekki tilbúin fyrir frið í Úkraínu

„Evrópa er ekki tilbúin fyrir hugsanlegan frið í Úkraínu.“ Þetta segir sænski iðnjöfurinn Jacob Wallenberg. Hann varar jafnframt við því að friður gæti sett strik í reikninginn fyrir áframhaldandi hervæðingu ESB: „Við vitum öll hvað gerist þegar friðurinn kemur.“

Hann lét þessi orð falla á árlegri ráðstefna Svíþjóðar og Finnlands „Hanalys 2026“ sem haldin er á Hanaholmen fyrir utan Helsinki. Meðal þátttakenda voru utanríkisráðherra Finnlands, Elina Valtonen og Maria Malmer Stenergard, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Auk stjórnmálamanna taka fulltrúar viðskiptalífsins þátt í ráðstefnunni og einn þeirra er margmilljarðamæringurinn Jacob Wallenberg.

Óttast að peningunum verði fjárfest í annað

Jacob Wallenberg er stjórnarformaður fjárfestingarfélagsins Investor og gegnir samtímis mikilvægum stjórnarstörfum hjá ABB og Ericsson meðal annarra fyrirtækja. Á ráðstefnunni notaði hann tækifærið til að vara við því sem gæti gerst ef Úkraína og Rússland semja um frið. Hann sagði:

„Flest okkar eru ekki mjög vel undirbúin fyrir hugsanlegan frið og allt sem honum fylgir.“

„Þetta verður gríðarlegt starf og mjög erfitt. Það er margir bitar sem þurfa að falla á sinn stað.“

Hinn sjötugi framámaður viðskiptalífsins óttast að sú hervæðing sem nú stendur yfir í Evrópu með fjárfestingum í varnarmálum upp á milljarði dollara muni ljúka – ef stríðinu lýkur. Wallenberg segir:

„Við vitum öll hvað gerist þegar friðurinn kemur. Við munum eiga langar umræður um þörfina á peningum til annarra hluta og svo framvegis.“

Óhjákvæmilegar fjárfestingar

Jacob Wallenberg og jafngamli frændi hans, Marcus Wallenberg, eru yfirleitt taldir leiðtogar Wallenbergsvaldsins. Það vakti athygli að nafn Marcus Wallenberg birtist í Epstein-skjölunum en hann neitar að hafa hitt Epstein.

Marcus Wallenberg er í stjórn Saab; fyrirtækis í varnarmálageiranum sem Wallenberg fjölskyldan, í gegnum Investor, Wallenberg investments og önnur fjárfestingarfélög, ræður yfir.

Verðmæti hlutabréfa Saab þrettánfaldaðist á milli janúar 2022 og janúar á þessu ári. Í maí 2024 var hlutabréfaskipting í hlutföllunum 1:4 framkvæmd, þegar hlutabréfaverðið fimmfaldaðist á nokkrum árum og nálgaðist eitt þúsund krónur.

Jacob Wallenberg leggur áherslu á það á finnska leiðtogafundinum að stjórnmálamenn í Evrópu bera ábyrgð á áframhaldandi hervæðingu:

„Það þarf bæði að vinna starf og gera fjárfestingar og ég vil segja – pólitískar skuldbindingar.“

Jacob Wallenberg varaði við „naflaskoðun“ Evrópu og mælti fyrir auknu samstarfi við Kína. Hann sagði:

„Það er í okkar þágu og það er algjörlega í þeirra þágu.“