Trump lýsir Viktor Orbán sem sönnum vini, baráttumanni og sigurvegara sem ætíð setji hag Ungverja í fyrsta sætið. (Mynd Hvíta húsið/X)
Þingkosningar verða í Ungverjalandi þann 12. apríl og Viktor Orbán forsætisráðherra lætur framkvæmdastjórn ESB fá það óþvegið eins og búast má við eftir fjárkúgun ESB í innflytjendamálum, Úkraínustríðinu m.fl. Í færslu á X krefst hann þess að Brussel haldi sig frá innanríkisstjórnmálum Ungverjalands.
Nýlega birti dómsmálanefnd Bandaríkjaþings skýrslu sem slær því föstu að framkvæmdastjórn ESB hafi beitt stóru samfélagsmiðlunum þrýstingi fyrir margar kosningar í Evrópu. Samkvæmt Bandaríkjaþingi er markmiðið að hafa áhrif á það innihald sem kjósendur fá að sjá og hafa þannig áhrif á niðurstöður kosninga. Með öðrum orðum, að ritskoða „óhentugar“ skoðanir.
Komið hefur í ljós að kosningaafskipti eru venjuleg verklagsregla hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Í frásögn nefndarinnar segir:
„Framkvæmdastjórnin hefur fundað með samfélagsmiðlum fyrir að minnsta kosti átta kosningar í sex Evrópulöndum frá árinu 2023 til að þrýsta á samfélagsmiðla að ritskoða stjórnmálalegar yfirlýsingar dagana fyrir kosningarnar.“
Í skýrslu frá 3. febrúar heldur nefndin því fram að framkvæmdastjórnin hafi, eftir að svokölluð DSA-lög tóku gildi árið 2023, þrýst á samfélagsmiðla til að ritskoða efni fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur meðal annars í Slóvakíu, Hollandi, Frakklandi, Moldóvu, Rúmeníu og Írlandi sem og fyrir ESB þingkosningarnar í júní 2024.
Orbán skrifar:
„Haldið krumlunum burtu frá kosningunum okkar! Skýrsla frá dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings sýnir hvernig erlendir aðilar reyna að hafa áhrif á kosningarnar í Ungverjalandi með peningum, þjónustu og pólitískum stuðningi sem streymir inn frá útlöndum. Ákvarðanir um framtíð Ungverjalands eru á valdi Ungverja sjálfra. Erlend afskipti verða ekki liðin.“
