Angist stjórnmálaandstæðinga Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Miðflokksins á sér aðrar rætur en að Bukele hafi tekist að ráða niðurlögum glæpahópanna í El Salvador í slíkum mæli að Svíþjóð mælist hættulegra land á ýmsum sviðum og tímabilum. Kannski standa stjórnmálaandstæðingarnir Miðflokksins rökþrota frammi fyrir vaxandi fylgi Miðflokksins. Það þarf enga sérstaka greind til að skilja þann árangur sem Bukele hefur náð í baráttu við glæpahópana. Núna ræða Belgar að að taka upp starfshætti Bukele í baráttu við glæpahópana þar. Svíar eru enn við sama heygarðshornið og núna eru glæpahóparnir orðnir órofa hluti sænska samfélagsins og velta 5,5% af efnahagskerfi Svíþjóðar.

Smáglæta er samt í myrkri Svía: janúarmánuður 2026 er fyrsti heili mánuðurinn í átta ár þar sem enginn er drepinn í skotárás í Svíþjóð. Bukele hefur tekist að ná 1000 dögum án morða af völdum glæpahópanna í El Salvador á fjórum árum.
Ár 2015 voru 6.656 morð opinberlega skráð í El Salvador. Þá var landið talið eitt hættulegasta ríki heims. Síðan kom Nayib Bukele til sögunnar og var kjörinn forseti landsins 2019. Hann setti á neyðarlög 2022 og skar upp herör gegn glæpahópunum. Núna sitja glæpamenn, fjöldamorðingjar á bak við lás og slá og fólk er byrjað að hreyfa sig frjálsara en áður.
Smábúðir hafa opnað að nýju úti á götum og ferðamenn farnir að sjást á ný. Ár 2024 komu um 4 milljónir ferðamanna til landsins. Í miðborg San Salvador er aftur hægt að fagna jólunum opinberlega á götum úti. 87% landsmanna segjast öruggir á gangi að næturlagi sem er langtum hærri tala en meðaltalið 47% fyrir fyrir nágrannaríkin. El Salvador er komið fram úr tryggum löndum eins og Sviss og Lúxemborg. Það má líka bera saman við Svíþjóð, þar sem önnur hver kona á aldrinum 16 – 19 ára er hrædd við að vera úti á kvöldin. 20% karla á aldrinum 45 -54 ár segjast einnig hræddir að vera einir úti á kvöldin.
Fyrsta ársfjórðunginn ár 2025 voru framin 32 morð í Svíþjóð samanborið við 20 morð í El Salvador á sama tíma. Það gerir rúmlega 50% fleiri morð í Svíþjóð. Í tölum Svíþjóðar eru fjöldamorðin á Risbergska skólanum í Örebro tekin með, þegar 10 manns voru drepin. En jafnvel þótt þeim væri sleppt voru morðin samt fleiri í Svíþjóð en El Salvador þennan ársfjórðung. Hér að neðan er línurit yfir morð í El Salvador á tímabilinu 1. – 21. apríl á árunum 2018 – 2025:

Æsifréttamennska DV er tilraun til að koma pólitísku höggi á formann Miðflokksins og sjálfan flokkinn. Málið er ekki að ræða hið alvarlega ástand í Svíþjóð sem núverandi stjórnvöld á Íslandi elta á röndum í hallelújakór Samfylkingar og Viðreisnar. Í Svíþjóð hafa kratar neyðst til að breyta staðhæfingum um að ekkert samband sé á milli innfluttra glæpamanna og manndrápa í skot- og sprengjuárásum. Íslenskir kratar virðast þurfa að minnsta kosti eitt til tvö eða jafnvel þrjú ár til að fatta það sem sænskir kratar segja. Þá er skaðinn oftar en ekki orðinn að veruleika á Íslandi öllum til tjóns.
Vinstri menn lýsa Bukele sem einræðisherra af því að hann skar upp herör gegn glæpahópunum. Samtímis standa vinstri menn ráðalausir gagnvart innflutningi á glæpamönnum og krefjast opinna landamæra og þegja yfir eða ráðast á þá sem benda á gallana og kalla þá öllum illum nöfnum. Vinstri menn ættu að velta því fyrir sér, hvers vegna Bukele þurfti að berjast gegn George Soros í viðureigninni gegn glæpaklíkunum til að koma öryggi á í El Salvador. Hann benti á (sjá X að neðan) að enginn hefur kosið Soros til að taka þátt í stjórnmálum einstakra ríkja. Soros-sleikjur Vesturlanda eru ein helsta hindrun í vegi fyrir frjálsa og jákvæða þróun.
Miðflokkurinn getur þakkað Eyjunni fyrir að auglýsa flokkinn svo vel og þar að auki ókeypis, þar sem getuleysi og angist stjórnmálaandstæðinganna koma svo skýrt í ljós. Eflaust hugsa fleiri með sér að þeir munu kjósa Miðflokkinn eftir frétt DV um afstöðu „Íslendinga í Svíþjóð.”
Fjöldinn allur af myndskeiðum er á netinu um afrek Bukele, hér að neðan er viðtal Tucker Carlson við Bukele, þar fyrir neðan bútur úr ræðu hans á þingi íhaldsmanna:
