UMPÓLAÐ stjórnarfar

Mitt ofan í yfirstandandi sveitarstjórnarkosningar á Íslandi ákveður ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um, hvort Ísland vilji ganga í ESB. Fyrir þá sem vilja komast inn í ESB er þetta kjörin staða, því þeir sem skipta sér af stjórnmálum eru flestir uppteknir við að undirbúa sveitarstjórnarkosningarnar.

Ekki bætir úr skák að kjördagur ESB-kosninganna er settur í lok ágúst rétt eftir að sumarleyfum landsmanna lýkur. Engu er líkar en hér hafi meðvituð hönd komið að verki til að fólk fái engan tíma til að átta sig á um hvað er kosið né þýðingu svarsins fyrir framtíð lýðveldisins og barna okkar.

Arnar Þór Jónsson hefur rætt sjálfstæðismál þjóðarinnar, lýðræði, lýðveldi og málfrelsi í langan tíma og er virkur í baráttunni fyrir NEI við ESB. Hann segir í viðtalinu:

„Ég fór ekki í laganám til að verða fótgönguliði erlends valds.”

Fólk ætti að íhuga þessi orð. Í dag falla ráðherrar flatir fyrir lokkandi hljómum erlendra stórvelda, einkum þess sambands sem rær öllum árum að verða sambandsríki.

Arnar Þór segir ráðherra hérlendis hafa snúist yfir í að vera nokkurs konar blaðafulltrúar erlends valds sem flytja heimamönnum fréttir af fínum ákvörðunum erlendra mikilmenna. Hann segir vanvirðinguna við Alþingi næst því ærandi.

Með slíkum starfsháttum er þingið sniðgengið og lítillækkað og hlutverk þess samkvæmt stjórnarskránni vanvirt.

„Það ríkir í rauninni UMPÓLAÐ STJÓRNARFAR, þar sem erlendar stofnanir taka í reynd ákvarðanir sem hafa geigvænleg framtíðaráhrif fyrir þjóðina.

Núna er tíminn kominn til að fólk láti minni málin til hliðar fyrir komandi átök um framtíð Íslands. Arnar Þór vinnur að því ásamt góðu fólki að mynda breiðfylkingu almennings gegn ofríki peningavalds Evrópusambandsins sem uppvíst er að innblöndun í kosningar annarra ríkja og ritskoðun sem hefur leitt Bandaríkjastjórn til að setja fyrrum framkvæmdastjóra ESB, Thierry Breton, í ferðabann til Bandaríkjanna.

Íslendingar þurfa að gæta sín. Þetta fólk kann sín tök á kosningasvindli og óreiðuupplýsingum.