Vladímír Pútín, forseti Rússlands, vildi lifa í friði og sátt við Evrópu og Vesturlönd. Það eru Vesturveldin sjálf sem hafa eitrað sambandið við Rússland, fullyrðir bandaríski stjórnmálafræðingurinn John Mearsheimer. Hann segir að það sé frekar Rússland sem hafi viljað friðsamlegt samband en Vesturlönd vilji það ekki (sjá X að neðan).
Glenn Diesen ræðir við stjórnmálafræðinginn John Mearsheimer meðal annars um samband Rússlands og Evrópu. Mearsheimer spáir því, að sambandið verði líklega slæmt í langan tíma. Hann trúir heldur ekki á neina diplómatíska friðarsamninga milli Rússlands og Úkraínu. „Ljósár“ er á milli krafna ríkjanna tveggja. Að sögn Mearsheimers lifa evrópskir stjórnmálamenn í þeirri blekkingu að Rússland sé mikil ógn við Evrópu:
„Þetta er hörmung fyrir Evrópu, Rússland er einfaldlega engin alvarleg ógn. Pútín vildi þróa leið til að lifa með Evrópu. Hann er enginn ofstopamaður. Hann vill ekki skapa neitt Stór-Rússland.“
Pútín vildi lifa í friði með Evrópu, fullyrðir Mearsheimer. En það var tekið út af borðinu. Og núna er sambandið orðið eitrað í staðinn.
Á sama tíma hóta Bandaríkin að yfirgefa Evrópu. Og þetta hræðast evrópskir stjórnmálamenn. Ef Bandaríkin yfirgefa Evrópu þá neyðast Evrópulöndin sjálf til að „takast á við þessa rússnesku ógn sem þau hafa gert svo mikið til að skapa“ segir hann. Og þau vita ekki hvernig þau eiga að takast á við aðstæðurnar:
„Vegna þess að þau eru svo djúpt sokkin í þetta fjandsamlega samband við Rússland. Leiðtogar Evrópu vilja vera fjandsamlegir. Að minnsta kosti gagnvart núverandi stjórn Rússlands.“
