Borgarstjóri New York vill fá íslam í stað Bandaríkjastjórnar

Zohran Mamdani, borgarstjóri New York borgar, notar íslamtrú sína til að réttlæta skoðanir sínar á innflytjendalögum og vill að Bandaríkin fylgi í kjölfarið. Íslam og Múhammeð eiga að stjórna Bandaríkjunum.

Mamdani hélt blaðamannafund á föstudag til að ræða um lögreglu útlendingaeftirlitsins ICE og innflytjendastefnu Bandaríkjanna. Madani heitir því að starfa ekki með stjórn Trumps sem vill handtaka ólöglega innflytjendur í New York og senda til síns heima.

Mamdani vitnaði í íslam á blaðamannafundinum sem réttlætingu á opnum landamærum. Hann hélt því fram að íslam grundvallaðist á fólksflutningum og benti á að Múhameð hefði ekki verið öllum kunnur í byrjun. Síðan vitnaði hann í nokkra kafla í Kóraninum til að réttlæta róttæka afstöðu sína til ólöglegra innflytjenda í fylkinu. Áhorfendur klöppuðu ákaft fyrir borgarstjóranum samanber myndskeiðið hér að neðan:

Við höfum kraftinn til að frelsa okkur sjálf. Ég tel mína eigin trú, Íslam, vera trúarbrögð sem bygjast á frásögn um fólksflutninga. Sagan af Hijrah minnir okkur á að spámaðurinn Múhameð var líka framandi, sem flúði Mekka og var velkominn í Medínu.

Ég tel að frelsi frá þjáningum sem búddismi kennir okkur sé aðeins mögulegt ef við fjarlægjum þrjár eitranir löngunar, haturs og fáfræði úr daglegu lífi okkar.

(vitnað í Kóraninn) Hvað varðar þá sem flytja inn fyrir málstað Allah sem eru ofsóttir, munum við örugglega blessa þá með góðu heimili í þessum heimi. Eða eins og spámaðurinn Múhameð sagði, Íslam byrjaði sem eitthvað undarlegt og mun verða aftur undarlegt. Svo gleðifréttir til ókunnugra.“

Mamdani montaði sig af því hvernig stjórn hans leiðbeinir ólöglegum innflytjendum um hvað þeir eigi að gera ef ICE nálgast þá. Hann sagði:

„Við höfum útbúið 30.000 leiðbeiningar á 10 tungumálum sem kenna nágrönnum okkar hvað eigi að gera ef ICE sækir að þeim.“