Ungverjaland: Evrópa á leiðinni „beint í stríð“ við Rússland

Ungverski utanríkisráðherrann Péter Szijjártó varaði við því eftir Parísarráðstefnuna, að Evrópa færðist sífellt nær beinum átökum við Rússland samanber X hér að neðan:

Viðvörunin kemur í kjölfar Parísarráðstefnunnar, þar sem ESB, Úkraína og Bandaríkin ræddu meðal annars um „öryggisábyrgðir“ fyrir Úkraínu. Samkvæmt Europaportal hafa Frakkland og Bretland undirritað „viljayfirlýsingu um að senda fjölþjóðaher á úkraínskt yfirráðasvæði“ eftir að vopnahlé verði komið á. Það þýddi þúsundir hermanna á úkraínskri grundu.

Samkvæmt Szijjártó var lögð fram önnur tillaga á fundinum sem ýtir Evrópu nær beinum átökum við Rússland:

„Með því að reyna að koma á hernaðarviðveru í Úkraínu eru Vestur-Evrópuríkin að skapa hættu á beinu stríði við Rússland. Ungverjaland mun standa fyrir utan. Við styðjum friðarviðræður, þar á meðal samningaviðræður á hæsta stigi milli Bandaríkjanna og Rússlands og höfnum þessu nýjasta skrefi í átt að stríði staðfastlega.“

Leiðtogaráð ESB hefur breyst í stríðsráð

Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands lýsir því á X hvernig Evrópusambandið hefur breyst: Leiðtogaráðsfundir ESB ræða og taka í dag einungis ákvarðanir um stríð og hernaðaruppbyggingu. Hann segir að Leiðtogaráðið hafi breyst í hernaðarráð:

„Fundir Evrópuráðsins eru orðnir að styrjaldaráði. Nokkur okkar leggja til aðra leið: frið, stöðugleika og ábyrgt hagkerfi. Á sama tíma óskar Úkraína eftir 800 milljörðum evra á næstu 10 árum sem ýtir Evrópu enn frekar í átt að efnahagslegri hnignun. Það er aðeins tímaspursmál hvenær Evrópubúar neita því að að láta teyma sig í átt glötun.

✊ Andspyrna er óhjákvæmileg.“

Fara efst á síðu