Trump rýfur tengsl við Tucker Carlson eftir gagnrýni á Íranstríðið

Deilur hafa brotist út milli forseta Bandaríkjanna og Tucker Carlsson, fjölmiðlamanns, sem áður var talinn náinn bandamaður hans. Donald Trump hefur núna opinberlega fjarlægt sig frá Tucker Carlson eftir að sá síðarnefndi gagnrýndi harðlega hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna gegn Íran.

Ágreiningurinn kom upp eftir að Carlson gagnrýndi loftárásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran og lýsti þeim sem „viðbjóðslegum og illum.“ Í kjölfarið sagði Trump að Carlson hefði „villst af leið“ og að hann stæði ekki lengur fyrir stefnu MAGA-hreyfingarinnar, sem byggir á slagorðinu „Bandaríkin fremst, America First.“

Carlson, sem áður starfaði hjá Fox News og er nú með eigin miðla og hlaðvarp, hefur lengi verið gagnrýninn á hernaðarafskipti Bandaríkjanna í Miðausturlöndum. Hann hefur einnig gagnrýnt Trump á fleiri sviðum, meðal annars varðandi stríðið í Úkraínu og önnur öryggismál.

Hörð orðaskipti

Trump sagði í viðtali að Carlson hefði glatað tengslum við hreyfinguna sem hann sjálfur leiðir. Að hans mati skilji fjölmiðlamaðurinn ekki meginmarkmið MAGA-stefnunnar, sem er að setja hagsmuni Bandaríkjanna í fyrsta sæti.

Carlson hefur á móti haldið því fram að átökin við Íran þjóni ekki bandarískum hagsmunum. Hann hefur meðal annars sagt að stríðið tengist fyrst og fremst geopólitískum markmiðum annarra ríkja í Miðausturlöndum og hvetur til þess að Bandaríkin dragi sig úr átökunum.

Sumir telja að hernaðaraðgerðirnar gegn Íran gangi gegn fyrri loforðum forsetans um að forðast ný stríð í Miðausturlöndum, á meðan forsetinn og stuðningsmenn hans telja að þær séu nauðsynlegar til að tryggja öryggi Bandaríkjanna.