Tíu drepnir og 19 særðir þegar bíll keyrði á mannfjöldann á jólamarkaði á frönsku Gvadelúp

Að minnsta kosti tíu manns misstu lífið og 19 særðust, þegar bíl var ekið á mannfjöldann á jólamarkaðinum á frönsku eyjunni Gvadelúp. Lögreglan segir að ökumaðurinn hafi verið handtekinn. Gvadelúpeyja er eyja í Karíbahafi í Vestur-Indíum, austan við Kúbu. Elon Musk og Tommy Robinson tjáðu sig á X, Musk með orðinu Aftur og Tommy Robinson bendir á að megin fjölmiðlar segi ekki frá atburðinum.

Hindustan Times er ein af fáum fréttastofum sem birta frétt um málið:

Samkvæmt frétt frá Radio Caraïbes Internationale Guadeloupe eru þrjú fórnarlömb sögð vera í alvarlegu ástandi. Harmleikurinn átti sér stað á Schoelcher-torgi, gegnt ráðhúsinu og kirkjunni.

Orsök slyssins er óþekkt og rannsókn á málinu er hafin. Samkvæmt vitnum á vettvangi sem vitnað er í í skýrslu RCI gæti ökumaðurinn hafa lent í læknisfræðilegu áfalli við stýrið. Þessi kenning er enn ekki staðfest. Ökumaðurinn er sagður hafa verið á vettvangi.

Gervigreindin Grok greinir frá:

Fara efst á síðu