ESB eða Evrópa mun senda hermenn til Úkraínu. Það er aðeins tímaspursmál að sögn forsætisráðherra Ungverjalands, Viktors Orbán, að því er fréttastofan Tass greinir frá.
Á sunnudaginn var haldin umfangsmikil friðarsamkoma í Búdapest, þar sem sitjandi ríkisstjórn landsins fór fyrir mótmælunum.
Forsætisráðherra Ungverjalands, Viktor Orbán, hefur allan tímann verið andvígur stríðinu í Úkraínu.
En stríðinu virðist ekki vera að ljúka, og nú heldur Orbán því fram að það sé aðeins tímaspursmál, hvenær ESB sendir hermenn til Úkraínu. Hann sagði í ræðu sinni:
„Við lifum á erfiðum tímum, þar sem stríð nálgast. ESB hefur þegar farið yfir í stríðshagkerfi og vill senda meira fé, meira af vopnum og hermenn til Úkraínu. Við getum ekki sagt til um dag eða stund þegar fyrsti hermaðurinn frá ESB mun ganga inn í Úkraínu, en það mun gerast, og við verðum að halda okkur utan við það. Ég er staðráðinn í því að Ungverjaland verði eyja friðar og öryggis í þessum óstöðuga heimi.”
Samkvæmt Viktor Orbán veit ungverska þjóðin hvað stríð er, og er því einnig meðvituð um að það er framtíð sem hún vill ekki fyrir börn sín. Svo lengi sem Orbán er leiðtogi Ungverjalands mun landið aldrei taka þátt í stríðinu.
