Ísland Þvert á flokka – vaxandi þjóðarhreyfing

Sigfús Aðalsteinsson, forystumaður Þvert á flokka, skrifar á Facebook í dag:

„Þetta er bara alveg að verða gott. Það er vaðið yfir almenning á skítugum skónum í flestum aðgerðum alþingis og ráðherra, hvort sem það var hin máttlausa moðstjórn 2017-2024 eða hvað þá hin falska “valkyrjustjórn” 2024-(2026?)

Spurningar sem almenningur spyr sig eru orðnar ærið margar.

Báðum við um opnun landamæranna eða gjörbreytt útlendingalög nr 80/2016?

Báðum við um að tugir og hundruðir milljarða af skattpeningum almennings renni árlega til fólks sem er í leit að betra lífi á annarra kostnað?

Báðum við utanríkisráðherra að gráta við komu tuga palestínskra “ættingja” hælisleitenda?

Báðum við um að utanríkisráðherra gæfi erlendum hommum og lesbíum 150.000.000?

Báðum við um að kristinfræði yrði hent út úr námi barnanna okkar og kynjaköltið innleitt?

Báðum við um að samræmd próf yrðu lögð niður?

Báðum við um skóla án aðgreiningar?

Báðum við um þessa háu vexti og verðbólgu?

Var ekki einhver sleggja sem ætlaði að “lemja þetta niður”?

Báðum við utanríkisráðherra að gera lítið úr Bandaríkjamönnum sem við höfum átt varnarsamning við í 80 ár?

Báðum við þessar “valkyrjur” að “ljúga” að okkur um hættuna sem stafaði að Evrópu og varnarsáttmálinn við Bandaríkin væri í hættu?

Báðum við um Bókun 35?

Báðum við um skattlagningu í nafni loftlagsvár?

Það er hægt að halda endalaust áfram. Þetta verður að stoppa.

Við getum ekki setið lengur hjá og skipst á ergelsi á samfélagsmiðlum.

Er ekki kominn tími á aðgerðir, vel ígrundaðar og skipulagðar?”