Gullforði Þýskalands er einn sá stærsti í heimi og er stór hluti hans enn geymdur erlendis, aðallega í Bandaríkjunum. Kröfur um að fá gullið heim til Þýskalands gerast sífellt háværari og er stjórnmálaflokkurinn Valkostur fyrir Þýskaland þar i fararbroddi. Samtímis breiðast sögur út um að Bandaríkjamenn séu búnir að nota gullið og það sé ekki lengur til.
Valkostur fyrir Þýskaland, Alternative fur Deutschland, AfD, krefst þess að gull Þýskalands verði skilað til baka til Þýskalands. Að sögn flokksins snýst þetta bæði um gagnsæi og öryggi – gullið tilheyrir þýsku þjóðinni og ætti því að vera varðveitt í Þýskalandi. Meirihluti gullforðans er í geymslum hjá erlendum seðlabönkum, sérstaklega Seðlabankanum í New York. AfD telur að það feli í sér óþarfa áhættu á tímum aukinnar spennu í heiminum.
Samtals hafa Bandaríkin um 1.236 tonn af gulli frá Þýskalandi, sem samsvarar andvirði um 1.800 milljörðum sænskra króna samkvæmt T-online. Þýski seðlabankinn Bundesbank hefur áður varið ákvörðunina um að hafa hluta af gullinu erlendis. Bankinn telur það vera kost að dreifa forðanum á alþjóðavettvangi
Óttast að Bandaríkin hafi eytt gullforðanum
AfD leggur áherslu á að mikilvægt sé að koma gullinu heim til að endurheimta stjórn á eignum landsins samtímis sem efnahagslegt sjálfstæði Þýskalands eflist gagnvart Bandaríkjunum og öðrum stórveldum. Emanuel Mönch, fyrrverandi hagfræðingur Bundesbank segir við Handelsblatt að nauðsynlegt sé fyrir Þýskaland að verða óháð Bandaríkjunum og „það sé áhættusamt að geyma svo mikið gull í Bandaríkjunum.”
Samhliða umræðum um flutning gullsins frá Bandaríkjunum til Þýskalands eru vangaveltur uppi að gullið sem Bandaríkin fengu til geymslu eftir seinni heimsstyrjöldina sé ekki lengur til. Kenningin er sú að Bandaríkin hafi hamstrað gull til að öðlast traust vestrænna ríkja og til að koma í veg fyrir átök í framtíðinni. Þótt gullforðinn finnist enn á pappírnum óttast margir að gullforðanum hafi þegar verið ráðstafað og gripið verði í tómt, þegar geymslurnar verða opnaðar.
