David Kurten, leiðtogi breska Arfleifðarflokksins Heritage Party, segir á X að stafræn skilríki, sem eru miklu meira en venjuleg bankaskírteini, séu áætlun glóbalista sem nú er verið að kynna um allan heim. Markmiðið er að taka frelsið af almenningi og ná stjórn á öllu í lífi einstaklingsins.
Kurten segir þessa áætlun verða kynnta í Bretlandi ásamt fjölda annarra landa. Hann segir á X (sjá að neðan):
„Stafræn skilríki eru áætlun glóbalista til að taka frelsið af almenningi og stjórna öllum þáttum lífsins.
Ég hef verið á móti þessu í mörg, mörg ár. Á tímum kórónuveirunnar, árið 2020, talaði ég um möguleikann á að eitthvað slíkt kæmi og ég var stimplaður sem brjálaður samsæriskenningasmiður. En nú er komið ár 2025 og Keir Starmer er að kynna þetta ásamt mörgum, mörgum öðrum löndum í heiminum.“
„Það virðist því sannarlega vera til staðar áætlun glóbalista um að gera þetta. Þetta kemur ekki bara frá ríkisstjórn í Bretlandi fyrir eitt land, heldur er þetta að gerast í Ástralíu, Kanada, Indlandi, út um allan heim. Og hugmyndin er sú að þú þurfir að hafa leyfi, þú þurfir að staðfesta persónuleg auðkenni þín til að gera hluti sem við höfum alltaf getað gert á frjálsan hátt áður.“
Kurten bendir á að stjórnmálamennirnir séu allir meðlimir í „sama glóbalíska alræðisflokki.“ Hann segir:
„Þetta virðist vera það sem hnattræningjarnir vilja og þeir framfylgja þessu í gegnum staðbundna stjórnmálamenn.“
Aðrir tjá sig einnig um málið:
Stafrænum auðkennum mótmælt í London
