Sprengjuárásir í Rinkeby tvo daga í röð

Sænska sjónvarpið greinir frá tveimur sprengjuárásum gegn sama íbúðarhúsi í Rinkeby, Stokkhólmi, aðfaranótt miðvikudags og daginn áður. Í seinni sprengingunni rifnaði útidyrahurðin og rúður splundruðust í nærliggjandi gluggum eins og sjá má á myndinni að ofan. Oliver sem býr á fyrstu hæð þakkar guði fyrir að konan hans og eins árs gömul dóttir voru í öðru herbergi, þegar sprengjan sprakk. Daniel Wikdahl hjá lögreglunni segir að mesta mildi sé að enginn sé alvarlega særður eftir árásirnar.

Sprengjuárásarnir hafa eyðilagt útidyrahurð, inn eftir gangi og fjölda glugga í húsinu ásamt eigum fólks sem hafa skemmst við sprengjuþrýstinginn og skæðadrífu glerbrota út um allt. Í þetta sinn ákvað lögreglan að ekki þyrfti að flytja fólk frá húsinu en fasteignaeigandinn Victoriahem hefur ákveðið að fólk sem bjó í nálægustu íbúðum við útidyrnar flytji annað á meðan verið er að athuga skemmdirnar og koma hlutum aftur í eðlilegt horf. Wikdahl hjá lögreglunni leggur áherslu á að:

„Margir eru mjög áhyggjufullir og órólegir og vilja yfirgefa heimili sín. Við reynum að ná vitnisburði af þeim áður en þau gera það.”

Eftir fyrra sprengjuódæðið var skipt um glugga sem voru svo sprengdir í seinni árásinni.

Oliver íbúi á fyrstu hæð við hlið útihurðarinnar segir:

„Þeir sprengja orðið daglega hérna í Rinkeby.”