Sérfræðingur í sjálfsvörn segir að Alex Pretti var skotinn sé réttlætanlegt samkvæmt lögum

Mikið gengur á hjá mótmælendum Bandaríkjastjórnar sem hafa aðgang að leyniupplýsingum úr kerfinu til að sitja fyrir ICE lögreglumönnum Innflytjendaeftirlitsins, þegar þeir eru að störfum. Sjálfsvarnarsérfræðingurinn Andrew Branca hefur skilgreint skotin sem urðu Alex Pretti að bana og hann segir þau hafa verið réttlætanlega sjálfsvörn (sjá myndskeið að neðan).

Andrew Branca segir:

„Um leið og hann (Alex Pretti) veitist að lögreglumanninum, þá hefur hann framið alríkisbrot sem refsað er með átta ára fangelsi. Þess vegna reyndu þeir að handtaka hann, vegna þess að þeir sáu hann fremja ofbeldisfullt brot gegn samstarfsmanni sínum.

Svo hlýðir hann ekki handtökunni. Hann er að berjast við þá. Svo uppgötva þeir að hann er með byssu…

Þeir taka þessa byssu. Það heyrast óp: ,byssa, byssa, byssa.‘ Lögreglumennirnir kölluðu hver á annan. Hann hlýðir samt ekki. Þeir heyra skot. Og hægri hönd Alex Pretty kemur frá miðju hans með svartan hlut í hendi.“

Andrew heldur áfram:

„Þessi samsetning staðreynda réttlætir að þú sért skotinn í 999 skipti af þúsund af lögreglunni og það með réttu. Þeir verða að meta allar þessar aðstæður og taka allar ákvarðanir í ofbeldisfullum, óreiðukenndum átökum sem Alex Pretti veldur þeim.

Þeir verða að taka allar þessar ákvarðanir á broti af sekúndu því þannig getur einhver notað vopn gegn þér, og þessar ákvarðanir þurfa ekki að vera réttar. Sjálfsvarnarlögin krefjast ekki þess að við tökum fullkomnar ákvarðanir…“

Fara efst á síðu