Sænska sjónvarpið SVT er ásakað um að hafa gert það sama og BBC og ritstýrt ræðu Donalds Trumps 6. janúar 2021, þannig að hann virtist ábyrgur fyrir árásinni á þinghúsið. Myndbrot frá SVT fær mikla alþjóðlega dreifingu meðal stuðningsmanna Trumps í Bandaríkjunum. Það leiðir hugann að RÚV á Íslandi sem þjáist af opinberri Trump-andúð. Varla hafa blaðamenn RÚV viljað vera minni en kollegarnir á BBC og SVT?
Tveir háttsettir stjórnendur hjá breska BBC hafa hrökklast frá störfum eftir að kom í ljós að fyrirtækið ritstýrði ræðu Trumps frá 6. janúar á þann hátt að Trump var að hvetja til árásarinnar í þinghúsið á meðan hann talaði einungis um friðsamleg mótmæli bandarískra föðurlandsvina.
Trump hótar BBC með málsókn upp á einn milljarð dollara ef BBC biðst ekki afsökunar á gjörðum sínum og leiðréttir heimildarmyndina fyrir morgundaginn. Mikill taugatitringur ríkir í háborg breska ríkissjónvarpsrisans og reynt að koma í veg fyrir milljarða dollara greiðslu til Trumps.
Nú afhjúpar sænska blaðið Kvartal að SVT hafi í raun gert sams konar hlut og BBC. Í grein í fyrra notaði SVT brot úr ræðunni þar sem mismunandi hlutar voru settir saman svo að það hljómaði eins og Trump væri að hvetja stuðningsmenn sína til að ráðast á þingið.
Alveg eins og í útgáfu BBC, var kaflanum sleppt, þar sem hann hvetur stuðningsmenn sína til að „láta rödd sína heyrast friðsamlega og af þjóðrækni.“
Libs of Tiktok – þekktur stuðningsmaður Trumps – skrifar að sænska ríkissjónvarpið „virðist einnig hafa breytt ræðu Trumps til að láta líta út eins og hann væri að hvetja til óeirða eins og BBC gerði.“
