Sænska stjórnmálastéttin hefur alveg ofboðslega mikla andúð á Rússum og það eykur hættuna á að Svíþjóð og Svíar dragist með í „mjög alvarleg hernaðaratvik“ við Rússa, segir Lars Bern í þætti heimsmála á Swebbtv síðast liðinn föstudag (sjá að neðan).
Það er í nýjum umræðuþætti um heimsmálin sem Mikael Willgert og Lars Bern ræða meðal annars um fullyrðingu rússneska sendiherrans í viðtali á Swebbtv um að sendiráð Rússlands í Svíþjóð sé einnig undir refsiaðgerðum.
Þeim finnst að verið sé að vinna gegn þeim, Mikal Willgert útskýrir:
„Þeir fá ekki að vera með bankareikninga, mega ekki hafa kreditkort og þurfi að versla með reiðufé, sem er ekki mögulegt í mörgum tilfellum.“
Lars Bern segir það fáránlegt að ráðast gegn sendiráðum:
„Það er ekki skynsamlegt að ráðast á sendiráðin. Hvernig eigum við að geta umgengist í þessum heimi ef við virðum ekki einu sinni sendiráð? Þetta er svo fáránlegt. Stjórnmálamenn okkar eru svo þrjóskir að það er ógerningur að lýsa því.
Sænska stjórnmálastéttin er haldnir svo mikilli Rússa-fóbíu að það er ekki einu sinni hægt að skálda það. Við erum á sama plani og Eystrasaltsríkin. Það eykur hættuna á að Svíþjóð dragist með í mjög alvarleg hernaðarátök við Rússa. Ég skil ekki hvað þeir eru að hugsa.“
Lars Bern bendir á Rússahatrið í fjölmiðlum. Mikael Willgert telur að sænska ríkissjónvarpið SVT hagi sér eins og að þeir séu útsendarar úkraínsku stjórnarinnar. Lars Bern segir:
„Það sem átti að vera upplýsingamiðill okkar, upplýsingamiðill sænsku þjóðarinnar, er svo rosalega hlutdrægt allan tímann. Og það er ekki gott. Því fólk mun taka eftir þessu að lokum, hægt en örugglega, og það þýðir að traustið getur aðeins orðið minna. Brátt munum við ekki eiga neitt traust eftir á fjölmiðlum okkar. Verkefni SVT er að vera hlutlaust og þá ætti þeir að vera það í þessu tilfelli líka.
Það er aldrei ein einasta frétt þar sem þeir fjalla um rússnesku hliðina. Af hverju taka þeir ekki viðtal við sendiherrann?“
Lars Bern bendir á það að áður fyrr hafi Svíþjóð verið „bein andstæða“ slíks diplómatísks fjandskapar.
