Reiðarslag fyrir danska jafnaðarmenn

Þegar öll atkvæði í dönsku kosningunum hafa verið talin kemur í ljós að vinstri blokkinn hefur forystu yfir hægri blokkinni með 84 þingsæti gegn 77. Miðjuflokkurinn Moderaterne verður vogarskál á milli blokkanna en 90 þingsæti þarf til að mynda ríkisstjórn.

Fyrir forsætisráðherrann Mette Frederiksen og Jafnaðarmannaflokkinn eru úrslit kosninganna reiðarslag og er óvíst hvort flokkurinn geti haldið völdum, þrátt fyrir að hann sé áfram stærsti flokkurinn. Mette Fredriksen reiknaði með því að Grænlandskrísan myndi færa henni og krataflokknum yfirgnæfandi meirihluta til ríkisstjórnarmyndunar en svo varð ekki raunin. Þótt kratarnir séu elskaðir af Brussel elítunni meðal annars vegna háværrar afstöðu fyrir þriðju heimsstyrjöldinni gegn Rússum, þá fellur það ekki í góðan jarðveg hjá bræðrum okkar Dönum.

Danskir sósíaldemókratar fengu 21,9%, töpuðu 5,6% fylgi og 13 þingsætum.

Allt bendir því til þess að miðjuflokkurinn Moderaterne fái lykilhlutverk í stjórnarmyndunarviðræðum. Flokkurinn, sem er leiddur af Lars Løkke Rasmussen, fékk 7,7% og 14 þingsæti sem setur flokkinn í vogarskálastöðu á milli blokkanna.

Dansk Folkeparti jók fylgi sitt verulega og bætti við sig 6,5%, mest allra flokka, og fékk 9,1%.

Skýrasti árangur kosninganna er hjá Socialistisk Folkeparti og Dansk Folkeparti. Socialistisk Folkeparti vex í 11,6% og verður þar með næst stærsti flokkur landsins, á meðan Dansk Folkeparti fékk mestu fylgisaukningu allra flokka.