Sænska bílablaðið Carup hefur eftir Daily Mail að niðurstaða breskra vísindamanna sé að dísil er umhverfisvænna en rafbílar. Rafbílarnir fá nefnilega rafmagn sem framleitt er með gríðarlegu kolefnisspori, þannig að þeir eru í raun drifnir með kolútblæstri þótt þeir hafi rafmótora.
Bretland nálgast óðfluga árið, þegar jarðefnaeldsneytisvélar eiga að hverfa. Bannið tekur gildi eftir fjögur ár. Núna vara breskir vísindamenn við því, að þetta sé allsherjar vindhögg út í loftið. Samkvæmt rannsóknum þeirra eru rafbílar knúnir orku frá virkjunum með gríðarlegu kolefnisspori. Um þriðjungur rafmagns í Bretlandi er framleiddur með jarðefnaeldsneyti.
Breska ríkisstjórnin hefur núll-kolefnisáætlun sem miðar að því að lágmarka kolefnislosun með því að færa umferð yfir í græna valkosti. Vísindamennirnir telja ekki að þetta sé réttlætanlegt miðað við núverandi aðstæður. Í staðinn verður núll áætlunin aðeins sviðsmynd fyrir raunverulega losun. Andrew Drew, vísindamaður við Queen Mary háskólann segir:
„Rafbílar og hitadælur verða verðmætari seinna meir – en í bili þurfum við að hætta að þykjast að tækin dragi úr losun þegar gögnin sýna að þau gera það ekki.”
Breska ríkisstjórnin vill skipta alveg yfir í rafbíla. En raforkukerfið í landinu er enn knúið af jarðefnaeldsneyti. Niðurstaða vísindamannanna er því að besti kosturinn fyrir umhverfið sé frekar tvinnbíll eða nútíma dísilbíll.
Birtist í virtu tímariti
Skýrsla þeirra hefur verið skoðuð og hún birtist í hinu virta tímariti Environmental Research. Ein af niðurstöðunum er að stjórnvöld hafi ofmetið framleiðslu úr vindorku og endurnýjanlegum orkugjöfum. Á þeim dögum þegar ský dregur fyrir sólu og lognblíða ríkir, þá er engin orka framleidd. Í staðinn eru aflstöðvarnar knúnar af fullum krafti. Samtímis þurfa eigendur rafbíla rafmagn á bíla sína.
Rafbílabyltingin þýðir aukið álag á breska raforkukerfið. Talið er að aflstöðvum verði fjölgað og notkun jarðgass muni aukast gríðarlega þegar allir aka um á rafbílum. Á sama tíma hefur breska ríkisstjórnin einnig lagt fram tillögu um kílómetragjald á rafbíla sem tekur gildi áður en bannið tekur gildi árið 2030. Það hefur verið gagnrýnt úr ýmsum áttum sem heimill á grænu umskiptunum.
