Vinnan heldur flestum föstum í Svíþjóð – en eftir það vilja 51% Svía yfirgefa landið samkvæmt nýrri könnun frá Kantar Sifo. Sem ellilífeyrisþegar vilja Svíar vera í heitari, sólríkari löndum. Önnur ástæða sem er nefnd er sú að fólk vill forðast glæpamennskuna sem hefur hreiðrað um sig í Svíþjóð.
Aðeins 36% – rúmlega þriðji hver Svíi – segjast vilja vera áfram í Svíþjóð, þegar að starfsævinni lýkur og 13% eru óviss. Meðal karla vilja 56% flytja til útlanda þegar þeir fara á ellilífeyri og 47% kvenna.
Spánn er efst á lista yfir draumaáfangastaði, þar á eftir koma Ítalía, Grikkland, Frakkland, Bandaríkin og Eyjaálfa.
Helsta ástæðan fyrir því að vilja yfirgefa Svíþjóð er loftslagið – fleiri sólskinsstundir og hlýrra veður. Aðrar algengar ástæður eru að vilja forðast glæpahópana eða lækka framfærslukostnað.
Áhuginn er breytilegur eftir landshlutum. Íbúar í Stokkhólmi vilja flestir flytja frá Svíþjóð 59% en áhuginn dvínar í Mið- og Norður Svíþjóð þar sem 45% vilja flytja frá Svíþjóð. Í Malmö og Gautaborg er hlutfallið nálægt landsmeðaltali, 49 og 50%.
Þeir sem hafa neikvæðustu afstöðuna gagnvart Svíþjóð eru á aldrinum 40–55 ára en 58% þeirra vilja eyði efri árum sínum erlendis. Meðal fólks á aldrinum 56–66 ára er hlutfallið aðeins minna eða 45%.
Könnunin var gerð í Sifopanel hjá Kantar Media á tímabilinu 19. – 25. mars 2025 og náði til 2.055 manns á aldrinum 25–66 ára.