Malhotra: Margir eru „tifandi krabbameinssprengjur“ án þess að vita af því

Núna ganga margir um sem eru tifandi krabbameinssprengjur fullyrðir hjartalæknirinn Aseem Malhotra í nýju viðtali (sjá rumble að neðan).

Í viðtali við RefugeOfSinners talar hinn frægi breski læknir Aseem Malhotra, sem þekktur er fyrir gagnrýni sína á svo kölluð Covid-bóluefni, um hvað þeir sem hafa tekið sprautuna geta gert.

Malhotra segir meðal annars að fólk eigi að hámarka efnaskiptaheilsu sína. Þetta er hægt að gera fljótt og auðveldlega með því að breyta mataræðinu.

Hann talar einnig um krabbamein:

„Veistu hvað veldur mér áhyggjum? Sú staðreynd að við höfum séð aukningu krabbameins hjá ungu fólki. Við vitum það í gegnum ýmsar aðferðir… Áhyggjurnar eru vegna þess hversu margar tímasprengjur í krabbameini eru þarna úti án þess að vita af því. – Spurningin er hversu margir þeir eru, hverjir þeir eru og hvernig við greinum þá …“ 

„Ég sé ungt fólk fá krabbamein, það er ótrúlegt og krabbameinið versnar mjög hratt.“ 

Malhutra ráðleggur fólki að styrkja ónæmiskerfið með D-vítamíni.

„Það er ástæða fyrir því að við þurfum að halda áfram að gera veður út af þessu, – við getum ekki bara sópað þessu undir teppið, – við höfum áhyggjur af því að fólk gangi um með krabbamein sem muni þróast fyrir tímann hjá þeim. Á meðan við fáum ekki fulla viðurkenningu frá almennum stjórnvöldum á því að þetta voru lýðheilsuhamfarir, þá getum við ekki fengið bestu vísindamennina til að leita að lausnum, það er að segja, hvernig við greinum þetta fólk og hvað við getum gert fyrir það.“ 

Fara efst á síðu