Kristrún Frostadóttir uppvís að því að plata þjóðina

Screenshot

„Það er bannað að plata” sagði Kristrún Frostadóttir með tilþrifum, þegar hún útskýrði að hún færi aldrei í þá vegferð að blekkja þjóðina með því að sækja um aðild að ESB með bara eins eða tveggja flokka stuðning á þingi og tæpan meirihluta hjá þjóðinni. Hún sagði eftirfarandi í viðtali við hlaðvarpið Chess After Dark 27. ágúst 2024:

„Ég veit bara að það er rosalega mikil vegferð að fara í það ferli og það er líka vegferð sem þarf að vera mikil samstaða um hjá þjóðinni. Eins og dæmin hafa sýnt, þú gengur ekki svo auðveldlega út úr Evrópusambandinu.“

„Ég er mjög meðvituð um það að það að ganga í Evrópusambandið er verkefni sem þorri þjóðarinnar verður að standa á bak við. Þetta þarf líka að koma frá grasrót sem er ekki bara í pólitísku samhengi.“

„Ég veit að fólk heldur að ég sé að blöffa með þetta. Það er bannað að plata. Það er bannað að plata í þessu starfi. Auðvitað geta hlutir breytzt en þegar ég segi að forgangsmálið núna verður efnahagslegur stöðugleiki í formi aðgerða sem við getum ráðist í strax í dag, ekki í formi alþjóðlegs samstarfs. Húsnæðismálin, heilbrigðismál, samgöngur og önnur atvinnustefna. Þetta eru risamál. Þá meina ég það og ég ætla ekki að fara á bak orða minna. Það þýðir ekki að það sé ekki hægt að ræða um ESB.“

Núna vita allir að ekkert er að marka orð þessarar konu. Hún sagði í viðtali við RÚV 10. mars að verði útkoman já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst:

„Ég mun selja landið fokdýrt.“

Kristrún Frostadóttir viðurkennir að spurningin um að ganga inn í ESB sé að selja landið okkar til erlendra yfirráða. Yfirráðin yfir þeim árangri sem aldalöng vinna landsmanna hefur náð að byggja upp. Vinningurinn fyrir hana er að komast sjálf að borði ESB með fríum hlunnindum og góðu lífi það sem eftir er á launum sem venjulegir Íslendingar geta varla látið sig dreyma um.

Það sem landsmenn fá fyrir sinn snúð verða mögulega nokkurra prósenta lækkun á Prins Póló.