Jólin eru smám saman að hverfa frá Ikea. Núna má ekki lengur leika kristin jólalög sem fagna fæðingarhátíð frelsarans á veitingastöðum vöruhúsanna. Það gæti móðgað einhvern íslamistann. Hvenær hverfur jólaskinkan af jólaborði Ikea og hvenær hættir jólaborðið að heita jólaborð og verður kallað hátíðarborð í staðinn?
Aðeins tveimur vikum fyrir jól setur Ikea umfangsmikla Ramadan-auglýsingaherferð fyrir þá sem fagna múslímskum föstumánuði á næsta ári. Sænski húsgagnarisinn skrifar:
„Lýstu upp heimilið fyrir Ramadan! Safnaðu fjölskyldu, vinum og nágrönnum saman fyrir töfrandi stund með hlýjum hjörtum og opnu heimili.“
„GOKVÄLLÅ“ er ný innanhússería, meðal annars með textíl, postulíni og ýmsum gerðum lýsinga fyrir Ramadan, sem Ikea setur núna á markaðinn.
Ikea segist vilja hjálpa til og „skapa hlýlegt og velkomið andrúmsloft á meðan Ramadan og Eid stendur yfir, þannig að hátíðin ásamt fjölskyldu og vinum verði enn hátíðlegri.“
Húsgagnarisinn hefur áður þróað minni seríur í tengslum við múslímskar hátíðir, en þetta er í fyrsta skipti sem verkefnið er svona stórt. Samkvæmt Ikea er verið að varpa ljósi á mismunandi leiðir til að hátíðahalda, þar sem margir safnast saman. Louise Ridell Ehinger, fjölmiðlafulltrúi hjá Ikea í Svíþjóð, segir við Expressen:
„Við viljum hvetja til og hjálpa til við hátíðahöld þar sem fólk kemur saman.“
„GOKVÄLLÅ“ línan er hönnuð af Darju Nordberg og Matildu Lindstam Nilsson og verða vörurnar fáanlegar vöruhúsunum í byrjun febrúar. Ramadan fastan hefst 18. febrúar og lýkur 19. mars.
