Ísland er núna í næsta sæti á eftir Svíþjóð í nauðgunum

Afneitun stjórnmálamanna á Íslandi fer í sögubækurnar

Arnar Þór Jónsson lögmaður og lýðræðissinni bendir á það á bloggi sínu að Ísland hefur náð nýrri „heiðursstöðu” í nauðgunum. Hann birtir tilvitnun í X (sjá að neðan) með mynd yfir nauðganir í Evrópu, þar sem Bretland er orðin höfuðborg nauðgana með flestar nauðganir miðað við höfðatölu eða 109 nauðganir miðað við 100 þúsund íbúa. Svíþjóð naut áður heiðursins að vera höfuðborg nauðgana en lendir núna í öðru sæti með 85,90 nauðganir miðað við 100 þúsund íbúa.

Nýtt er og sérstaklega athyglisvert að Ísland hefur klifrað upp „vinsældalista” nauðgana og er í þriðja sæti, strax á eftir Svíþjóð, með 68,70 nauðganir á 100 þúsund íbúa.

Metnaður stjórnmálamanna á Íslandi, ekki síst núverandi ríkisstjórnar, hefur alltaf verið að Ísland sé þjóð meðal þjóða. Hverjar skyldu nú vera ástæðurnar fyrir þessu ofbeldisstökki landans að undanförnu?

Er útkoma kvennabaráttunnar sú að íslenskir karlmenn séu hættir að líta á konur sem jafningja og líta fremur á þær sem búskap? Til hvers var þá barist?

Sssss! Ekki minnast á innflutta fjölmenningu sem leyfir bæði fjölkvæni og kynlíf með börnum. Góða fólkið kallar slíkt bæði íslamafóbíu og rasisma!