Ísland er komið á dagskrá sem raunverulegt aðildarríki ESB

Kjósendur blekktir – Aðildarferlið komið á fulla ferð

Eftir upplýsingar danska ríkisútvarpsins um viðbúnað Nató-ríkja til að berjast gegn Bandaríkjamönnum á Grænlandi, þurfa Íslendingar að taka enn harðari afstöðu gegn ESB og endurskoða afstöðu sína til íslensku ríkisstjórnarinnar. ESB hefur sett aðild Íslands að sambandinu í forgang með tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi í ágúst. Verið er að hraða inngöngu Íslands í ESB á þeim fölsku forsendum að verið sé að kjósa um, hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju. Ísland framfylgir de facto utanríkisstefnu ESB í dag eftir undirskriftir og loforð Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra í Brussel. Það eru svik við besta vin íslensku þjóðarinnar, Bandaríkin, sem enginn Íslendingur hefur beðið um.

Þvert á móti stríðsundirbúningi ESB við Rússland á Ísland að hafna utanríkisstefnu ESB sem skilgreinir Bandaríkin með núverandi forseta sem óvin. Ísland á að hætta tafarlaust öllum stuðningi við Úkraínu og krefjast friðar og utanríkisstefna Íslands á að stuðla að friði en ekki allsherjarstríðs gegn Rússlandi. Endurreisa á íslenska sendiráðið í Moskvu og hleypa Rússum aftur í eðlileg sendiráðsstörf í Reykjavík.

Íslenska ríkisstjórnin notfærir sér stríðsástandið til að hraða innlimun Íslands í ESB og „gleymir” hvað Bandaríkjamenn hafa hjálpað Íslendingum í seinni heimsstyrjöldinni og síðar.

Hraðferð inn í ESB – án umboðs, án umræðu, án ábyrgðar

Í viðtali við Reuters lýsir utanríkisráðherra yfir bjartsýni um að Ísland geti orðið aðili að ESB strax árið 2028. Þetta er ekki varfærin nálgun. Þetta er tímasett markmið. Þetta er pólitísk yfirlýsing um fyrirfram ákveðna niðurstöðu sem er tekin burtséð frá því, hvað þjóðinni finnst.

Lýðræðinu er snúið á hvolf. Prinspólóstjórnin þykist treysta þjóðinni og fer mikinn í orðagjálfri um að þjóðin fái að segja sitt. En hvernig stemmir það við að verið er að flýta atkvæðagreiðslunni svo fólki gefist ekki tíma til að hugsa og þjóðinni er bannað samráð um þingsályktunartillöguna? Í öðrum málum er það gert og hvers slags traust er það að afnema lýðræðið til að þvinga fram þessa atkvæðagreiðslu í skyndi? Ríkisstjórnin treystir ekki þjóðinni, verið er að ljúga að henni að hún eigi að kjósa um aðildarviðræður sem þegar eru í fullum gangi.

Þorgerður talar og vinnur út frá gefinni niðurstöðu án þess að þjóðin hafi fengið tækifæri að segja sitt. Það segir allt sem þarf að segja um þessa svindlför þessarar ríkisstjórnar.

Kosningasvindl

Planið er þetta: ESB telur að flýtikosning á lognum forsendum geti blekkt fólk til að segja já. Fólk á að halda að það kjósi um hvort að teknar skuli upp viðræður sem þegar verða mjög langt komnar, þegar kosningin fer fram. Eftirleikurinn er augljós:

Ef Íslendingar gleypa agnið og kjósa já, þá verður það einungis tekið sem já við inngöngu í ESB. Kosningaloforð forsætisráðherrans um seinni kosningu er álíka loforð og að setja ekki ESB á dagskrá á þessu kjörtímabili. Gerður verður samningur við ESB sem ráðherraráð ESB samþykkir og hann lagður fyrir Alþingi og forseta Íslands. Samningurinn verður keyrður með kjarnorkuákvæði sem bannar frekari umræðu á Alþingi um málið og hlaupið með samninginn til undirskriftar á Bessastöðum. Einu kosningarnar sem boðið verður upp á verða venjulegar alþingiskosningar til að samþykkja breytta stjórnarskrá. Þjóðin verður ekki spurð framar, hún hefur ánetjast ESB sem fær full yfirráð yfir fiskimiðum og orku landsins.

Íslendingar verða leiguliðar í eigin landi án möguleika að stjórna eigin örlögum.