Trump segir úrskurðinn vera „skömm“ og íhugar aðrar leiðir
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur stöðvað tvær af umtöluðustu tollaáætlunum Donalds Trumps og markar skýrt, hvar valdið yfir sköttum og viðskiptum liggur. Með 6 atkvæðum gegn 3 voru bæði lyfjatollar gegn Kanada, Mexíkó og Kína og alþjóðlegir „gagnkvæmir tollar“ sem skóku heimsviðskiptin hafnað. Trump brást við úrskurðinum skömmu síðar og kallaði hann „skömm.“ Trump sagðist einnig hafa varaáætlun til að bregðast við.
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur stöðvað tvær tegundir tolla sem Donald Trump forseti lagði á stuttu eftir að hann tók við embætti í janúar 2025. Með 6 atkvæðum gegn 3 úrskurðaði dómstóllinn að neyðarlögin um Alþjóðlega beitingu neyðarefnahagslegs valds, International Emergency Economic Powers Act, IEEPA, veiti forseta ekki rétt til að leggja á tolla. Það vald er í höndum Bandaríkjaþings.
Tvær aðskildar ákvarðanir í neyðartilvikum
Um tvær mismunandi ákvarðanir er að ræða:
- Tollar vegna fíkniefnasmygls
Forsetinn lagði 25% toll á flestar vörur frá Kanada og Mexíkó og 10% toll á flestar vörur frá Kína. Markmiðið var að stöðva flæði ólöglegra fíkniefna, þar á meðal fentanýls. Forsetinn lýsti yfir neyðarástandi vegna lýðheilsu með nokkrum tilskipunum, þar á meðal tilskipun 14193.
2. Gagnkvæmir tollar
Í apríl 2025, á „Frelsisdeginum“ voru lagðir 10% lágmarkstollar á innflutning frá öllum viðskiptalöndum. Tugir landa urðu fyrir hærri tollum. Sérstöku neyðarástandi var lýst yfir hér, þar sem vísað var til langvarandi viðskiptahalla sem forsetinn sagði hafa grafið undan bandarískri framleiðslu og veikt mikilvægar framboðskeðjur (tilskipun 14257).
Hæstiréttur ógildir báðar tilskipanirnar.
Í úrskurðinum segir:
„IEEPA heimilar ekki forseta að leggja á tolla.“
Hæstaréttardómarinn John Roberts, sem skrifaði meirihlutaálitið með stuðningi dómaranna Barrett, Gorsuch, Jackson, Kagan og Sotomayor, skrifaði:
„Stofnfeðurnir veittu ,þinginu einu‘ þetta vald – jafnvel þó að tollar hafi greinilega áhrif á utanríkisstefnu.“
Dómararnir Thomas, Alito og Kavanaugh voru ósammála og mótmæltu dómnum harðlega og vöruðu við því að þessi ákvörðun skapi „klúður“ af biblíustærð fyrir bandaríska fjármálaráðuneytið og „geri þjóðaröryggi okkar berskjaldað fyrir erlendum ógnum.”
Þessir dómarar sögðu dóminn þýða hættulega valdatöku dómsvaldsins sem hunsaði söguleg fordæmi og skýran ásetning þingsins um að veita forseta vald á neyðartímum.
Dóminn má lesa á ensku hér að neðan.
