Finnski forsætisráðherrann Petteri Orpo hefur beðist afsökunar á japönsku, kínversku og kóresku eftir að þingmenn úr flokki Sannra Finna birtu myndir af sér að búa til kínversk augu. Myndirnar hafa orðið tilefni opinberrar umræðu í Japan, Kína og Suður-Kóreu.
Stjórnmálamenn Sannra Finna birtu myndir af sér til að sýna stuðning sinn við Söru Dzafce, ungfrú Finnland í ár, sem missti titilinn eftir að hafa setið fyrir á mynd þar sem hún teygði út augun til þess að líkja eftir Kínverjum.
Skrifstofa Orpo segir að forsætisráðherrann hafi brugðist við gagnrýni eftir að myndirnar flugu út um allan heim og sköpuðu umræður í viðkomandi löndum.
Yfirlýsingin er birt á samfélagsmiðlum finnsku sendiráðanna, þar á meðal á opinberum reikningi finnska sendiráðsins í Tókýó á X, að því er Helsingin Sanomat greinir frá.
Orpo tekur afstöðu gegn myndunum og biðst innilega afsökunar á móðgandi færslum einstakra þingmanna á samfélagsmiðlum. Hann leggur einnig áherslu á að „kynþáttafordómar og mismunun“ eigi sér engan stað í Finnlandi. Í yfirlýsingunni segir enn fremur að hópleiðtogar þingflokka ríkisstjórnarflokkanna fordæmi hegðunina sameiginlega.
Myndirnar sem um ræðir voru birtar af þingmönnunum Juho Eerola og Kaisa Garedew. Eerola hefur beðist afsökunar á birtingunni. Garedew sagði hins vegar við Iltalehti á miðvikudag að hún skilji ekki hvað hún ætti að biðjast afsökunar á.
Samkvæmt Helsingin Sanomat mun þingflokkur Sannra Finna ræða málið síðar í dag fimmtudag. Síðastliðið haust samþykkti finnska þingið að þingflokkar refsi eigin þingmönnum sem brjóta gegn sameiginlegum siðareglum.
