Femínisminn er mesta ógn sem Vesturlönd standa frammi fyrir

Íris Erlingsdóttir tók viðtal (á ensku) við Josh Slocum stjórnanda Disaffected, sem eru vikulegur sjónvarpsþáttur (auk þriggja vikulegra hljóðþátta). Þættirnir Josh fjalla um mannleg samskipti, menningu og stjórnmál séð út frá sálfræðilegu sjónarhorni, með sérstaka áherslu á narsissíska hegðun og persónuleika, sérstaklega klasa B persónuleikaraskanir.

Kjarnahugmynd þáttarins er í stuttu máli sú að við lifum í heimi sem starfar eftir reglum klasa B persónuleikaraskana.

Josh ólst upp á heimili undir stjórn einstæðrar móður með jaðarsturlunar- (borderline) og narsissíska persónuleikaröskun. Slíkar tilfinningalegar raskanir eru algengar meðal ofbeldisfullra foreldra og maka. Árið 2016 sleit Josh öllum tengslum við móður sína og uppgötvaði að það var til nafn yfir þá persónuleikatýpu sem öskraði á fjölskyldumeðlimi og sakaði fórnarlömbin um ofbeldi: Klasi B.

Josh telur að samfélagið hafi “normalíserað” narsissíska og jaðarsturlaða einstaklinga. Það er leið út úr þessari fjöldasturlun og hún byrjar á því að við förum að sjá heiminn, fólkið í kringum okkur og okkur sjálf eins og við raunverulega erum.Josh Slocum er stjórnandi þáttarins Disaffected, sem eru vikulegur sjónvarpsþáttur (auk þriggja vikulegra hljóðþátta). Þættirnir fjalla um mannleg samskipti, menningu og stjórnmál séð út frá sálfræðilegu sjónarhorni, með sérstaka áherslu á narsissíska hegðun og persónuleika, sérstaklega klasa B persónuleikaraskanir.

Kjarnahugmynd þáttarins er í stuttu máli sú að við lifum í heimi sem starfar eftir reglum klasa B persónuleikaraskana.

Josh ólst upp á heimili undir stjórn einstæðrar móður með jaðarsturlunar- (borderline) og narsissíska persónuleikaröskun. Slíkar tilfinningalegar raskanir eru algengar meðal ofbeldisfullra foreldra og maka. Árið 2016 sleit Josh öllum tengslum við móður sína og uppgötvaði að það var til nafn yfir þá persónuleikatýpu sem öskraði á fjölskyldumeðlimi og sakaði fórnarlömbin um ofbeldi: Klasi B.

Josh telur að samfélagið hafi “normalíserað” narsissíska og jaðarsturlaða einstaklinga. Það er leið út úr þessari fjöldasturlun og hún byrjar á því að við förum að sjá heiminn, fólkið í kringum okkur og okkur sjálf eins og við raunverulega erum.

Fara efst á síðu