Facebook íhlutast í kosningarnar í Ungverjalandi fyrir ESB: Ritskoðar Viktor Orbán

Aðeins vikum fyrir kosningarnar í Ungverjalandi segja ungverskir fjölmiðlar frá því að Meta hafi byrjað að takmarka færslur frá forsætisráðherranum Viktor Orbán. Þessar upplýsingar vekja harða gagnrýni og eru taldar tilraun til að hafa áhrif á kosningar. ESB

Samkvæmt Hungarian Conservative hafa færslur Viktor Orbáns á Facebook verið takmarkaðar eftir skipulagða herferð þar sem efni hans hefur verið kært í stórum stíl. Framtakið er tengt einstaklingum innan stjórnarandstöðuflokksins Tisza, þar sem fyrrverandi starfsmaður Meta á að hafa hvatt til þessa.

Hér er ekki um einstakt atvik að ræða – heldur markvissa aðgerð í lokaþætti og harðasta hluta kosningabaráttunnar.

Boðskap stjórnarandstöðunnar dreift um allt

Samhliða er greint frá óvenju mikilli dreifingu á efni frá ESB-sinnuðum leiðtoga stjórnarandstöðunnar, Péter Magyar. Magyar er líkt við alþjóðlega þekkta stjórnmálamenn eins og Barack Obama, Bernie Sanders, Alexandria Ocasio-Cortez och Donald Trump. Fjölmiðillinn Mandiner greinir frá því að Peter Magyar hafi fengið markfalt fleiri likes og samspil á netinu í samanburði við aðra og segir blaðið að „eitthvað mikið og alvarlegt sé að.”

Er um grófa íhlutun Meta að ræða að auka verulega umfang og sýnileika stjórnarandstöðunnar á sama tíma og reikningur Viktor Orbáns og ríkisstjórnarinnar er takmarkaður og fær litla dreifingu.

Í athyglisverðri færslu á X skrifar álitsgjafinn Mario Nawfal:

„Þegar Ungverjaland stefnir að úrslitakosningum í apríl, takmarkar Facebook samkvæmt heimildum færslur frá forsætisráðherra landsins.

Ef stærsti samfélagsmiðill Ungverjalands heldur áfram að takmarka efni Orbáns á sama tíma og reikningar stjórnarandstöðunnar virðast blásnir út, þá vakna alvarlegar spurningar um tjáningarfrelsi og heilindi lýðræðisins.“

Tengsl utan Ungverjalands

Jafnframt beinist athyglin að einstaklingum innan Meta sem vinna með efni i Ungverjalandi. Samkvæmt heimildum hefur ábyrgur embættismaður Meta látið í ljós skýrar pólitískar skoðanir, þar á meðal stuðning við Úkraínu og gagnrýni á ríkisstjórn Ungverjalands. Tvö nöfn eru nefnd í þessu samhengi: Dóra Dávid, sem áður starfaði sem lögfræðilegur ráðgjafi hjá Meta en er nú þingmaður á Evrópuþinginu fyrir Tisza flokkinn, – helsta andstæðing Orbáns.

Hinn aðilinn er Oskar Braszczyński, sem er samstarfsaðili Meta í málefnum sem varða stjórnvöld og stjórnmál í Mið- og Austur-Evrópu. Braszczyński hefur áður starfað sem greiningaraðili á Evrópuþinginu og kemur gjarnan að starfi Meta í tengslum við almennar kosningar innan ESB.

Oscar Braszczynski fulltrúi Meta á fundi með kosningayfirvöldum í Lettlandi.

Braszczyński, sem er búsettur í Varsjá í Póllandi, tjáir skýrar pólitískar skoðanir á samfélagsmiðlum þar sem hann tekur afstöðu gegn ríkisstjórn Victor Orbáns.

Af þeim sökum eru sumir sem draga í efa hlutverk hans hjá Meta og hvort hann kunni á einhvern hátt að hafa áhrif á hversu mikla dreifingu ungverskir frambjóðendur fá á miðlum tæknirisans fyrir kosningarnar.

Það vekur spurningar um hver það sé í raun sem stýrir því hvaða skilaboð ná til kjósenda.

Samkvæmt álitsgjafanum Philip Pilkington er Oskar Braszczyński ábyrgur hjá Meta (eiganda Facebook) fyrir samskipti við stjórnvöld og samfélagsmál í Mið- og Austur-Evrópu. Hann er ötull stuðningsmaður Úkraínu og hinsegin hreyfingarinnar.

ESB hefur virkjað kerfi til fylgist með öllu á netinu fyrir kosningar

Takmarkanirnar eiga sér stað á sama tíma og ESB hefur virkjað kerfi til að fylgjast með efni á netinu fyrir kosningarnar. Vegna fyrra samstarfs ESB og Meta telja margir að það sé sjálft ESB sem íhlutist um kosningarnar, því ESB vill losna við Victor Orbán frá völdum.

Samspil þess að færslur sitjandi forsætisráðherra eru skertar á meðan skilaboðum stjórnarandstöðunnar er dreift sem víðast er af gagnrýnendum lýst sem alvarlegri íhlutun í kosningabaráttuna.

Spurningin sem margir í Ungverjalandi spyrja núna er einföld: Er hægt að telja kosningar frjálsar þegar upplýsingaflæðinu er stýrt með þessum hætti?