Að Evrópusambandið heggur til gegn Íslandi og Noregi núna með neitun á undanþágu frá hluta tolls á kísilmálmi, er aðgerð til að auka þrýsting á löndin um að ganga inn í sambandið. Verið er að beita fyrir sig Donald Trump og bandarískum tollum ásamt Úkraínustríðinu sem „sérstöku ástandi“ til að brjóta EES-samninginn en raunverulegur tilgangur er að sýna Íslandi og Noregi að það er Evrópusambandið sem stjórnar. Tveir hlutir eru á borðinu: Slá kíl á milli Bandaríkjanna og Íslands og hræða samtímis andstæðinga ESB með sýnilegri girðingu þar sem ESB-ríkin njóti verndar en en ekki ríki utan ESB. Ætlunin er að hræða almenning á Íslandi og í Noregi til að gefa eftir fyrir kröfum ESB-sinna og flýta inngöngu Íslands og Noregs í ESB. Þetta er dæmigerð heimsvaldastefna – nýnýlendustefna ESB.
Íslendingar og Norðmenn eiga enga vörn gegn túlkun ESB á hinu „sérstaka ástandi.“ Sá sterki ræður. Evrópusambandið hefur breyst í hernaðarsamband og látið er til skarar skríða gegn þeim Norðurlandaþjóðum sem enn hafa ekki komið sér í vagn nakta keisarans og neita að lúta drottnunarvaldi sambandsins.
Nákvæmlega eins og Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, lýsti í Kastljósþætti 18. nóvember, þegar hún sagði tolla á íslenskar vörur „ekki vera neina sérstaka niðurlægingu við íslensk stjórnvöld.“ Hún sagði einnig að hagsmunir Íslands yrðu einungis tryggðir með því að Ísland væri „innan ESB-girðingarinnar en ekki fyrir utan.“
„Við lifum á sérstökum tíma. Hér er Evrópusambandið að slá skjaldborg utan um sín aðildarlönd. Við erum því miður ekki þar fyrir innan.”
Allt tal valkyrjanna um að „standa á rétti Íslands,“ „berjast fyrir EES-samningnum,“ „vinna að hagsmunum Íslands“ fylgir þekktu ESB-munstri til þess ætlað að blekkja almenning um að hinar miklu baráttukonur vinni fyrir hagsmunum þjóðarinnar samtímis sem þær hafa gert upp um inngöngu Íslands í ESB á bak við tjöldin. Frestun á undirskrift varnarsamkomulags eða samstarfs um að afhenda ESB íslenska landhelgi og fiskimið munu engin áhrif hafa á áætlun ESB um að innlima Ísland í sambandið. Valkyrjurnar keppast um að lýsa því hvað ESB sé nú í raun og veru góður samstarfsaðili sem hafi „látið undan“ kröfum valkyrjanna sem tókst að „minnka skaðann“ verulega.
Eiginlega segir ríkisstjórnin við almenning að hrósa beri ríkisstjórninni fyrir hinn frábæra árangur. Og eftir situr stóra spurningin sem núna hefur í einni hendingu sýnt hinn stóra sannleika:
„Ísland verður að vera réttu megin við girðinguna. Ísland á að ganga með í ESB svo hagsmunum þjóðarinnar sé borgið.“
Valkyrjurnar hafa tekið sér embætti nýlendufrúa landsins, landsstjórnenda Íslands fyrir miðstjórnina í Brussel, þangað sem Moskva Sovéttímans var flutt í heilu lagi.
Ekkert mun breyta þessu nema að þjóðin rísi upp og segi STOPP! HINGAÐ OG EKKI LENGRA!
