Íslendingar launa Bandaríkjamönnum fyrir að, eins og Helgi Magnús Gunnarsson sagði nýlega í
erindi á fundi Þvert á flokka, vera “okkar helstu bandamenn í gegnum tíðina – í
landhelgisdeilum, þeir vörðu okkur í stríðinu (WWII)…”með því að “taka upp alla skíta-málstaði
sem við getum fundið sem eru andstæðir okkar bandamönnum í USA og Ísrael… þetta er
hneisa. Bandaríkjamenn, við erum með varnarsamning við þá til 75 ára… Við eigum að rækta
þetta samband.”
En eins og segir í ljóði (enskumælandi) skáldsins, “no good deed goes unpunished” – engu
góðverki er ekki refsað. Heimska og hroki sumra Íslendinga er svo takmarkalaus að þeir monta
sig á almannafæri af því að gera “listaverk” sem sýnir hönd einhvers fávita brenna bandaríska
fánann fyrir framan Höfða. “Lista”konan vanrækti hins vegar að sýna ástmegi íslensku
þjóðarinnar, svo ég bætti ég um betur.
