Enginn vafi hjá sósíaldemókrötum innan ESB um að kosið verður um inngöngu Íslands í ESB 29. ágúst

Hópur sósíaldemókrata og sósíalista á ESB-þinginu, þar sem Samfylkingin á heima með krötum Svíþjóðar meðal annarra, fagna ákvörðun Íslands um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að ganga með í ESB eða ekki. Þetta er vitað í Brussel: Atkvæðagreiðslan á Íslandi þann 29. ágúst næst komandi er um inngönu landsins í ESB. Berið þessa afstöðu saman við loddarana, snákaolíusalana og trúðana á Íslandi sem segjast ætla að lenda samningi sem þýddi að öll aðildarríkin yrðu að samþykkja nýjan Reykjavíkursáttmála, því Lissabonsáttmálin væri dauður.

S&D hópur ESB-þingsins skrifar á Facbook:

Flokkur sósíalista og demókrata á Evrópuþinginu skrifar á Facebook:

Það er opinbert: Ísland mun halda þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst til að ákveða hvort það eigi að ganga í Evrópusambandið eða ekki.

Á tímum mikils óstöðugleika stendur Evrópusambandið okkar betur en nokkru sinni fyrr sem fyrirmynd lýðræðis, öryggis og trausts.

Framtíð Íslands á heima í Evrópusambandinu. Saman erum við sterkari.
🇪🇺❤️🇮🇸

iceland #europeanunion #eu