Eldur Smári áfrýjar til Landsréttar

Eldur Smári Kristinsson hefur ákveðið að áfrýja miskabótamáli sínu gegn Bergsteini Sigurðssy og RÚV áfram til Landsréttar. Eldur hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu:

Eldur Smári Kristinsson áfrýjar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur til Landsréttar í máli gegn Ríkisútvarpinu og Bergsteini Sigurðssyni

Reykjavík, 28. nóvember 2025

Ég, Eldur Smári Kristinsson, tilkynni hér með að ég hef ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 3. nóvember 2025 í miskabótamáli mínu gegn Bergsteini Sigurðssyni og Ríkisútvarpinu ohf. Dómurinn sýknaði stefndu af kröfum mínum um miskabætur og lagði á mig að greiða málskostnað.

Í gær, fimmtudaginn 27. nóvember, var áfrýjunarstefna, í máli 828/2025 hjá Landsrétti, gefin út.

Ég er áfram sannfærður um að ummælin sem féllu í þættinum Forystusætið á RÚV fyrir alþingiskosningarnar 2024 voru rangar, villandi og skaðleg fyrir mig, og að þau brutu á heiðri mínum og einkalífi. Í umræddum ummælum var ég ásakaður um athæfi sem gæti brotið gegn lögum, og mér var ranglega eignað að hafa tekið myndir af börnum og starfsfólki á skólalóð og fjarlægður í kjölfarið af lögreglu.

Sem opinber fjölmiðill ber Ríkisútvarpið sérstaka ábyrgð samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið, sem kveða á um að það skuli vera fyrirmynd í gæðum og faglegum vinnubrögðum, tryggja sanngirni og hlutleysi í fréttaflutningi, og leita upplýsinga frá báðum eða öllum aðilum. Ég tel að RÚV hafi ekki uppfyllt þessa skyldu í umfjöllun sinni um mig og Samtökin 22 (nú LGB Samtökin) og að þetta skapi ógn við lýðræðið og frjálsa umræðu í samfélaginu. Ríkisútvarpið hefur aldrei virt andmælarétt minn eða LGB samtakanna, aldrei svarað tölvupóstum eða orðsendingum þegar umræða okkur tengd hefur átt sér stað í útvarpi, sjónvarpi eða vefsíðum þess.

Ég hef alltaf staðið fast við skoðanir mínar, sem byggja á þeirri trú að það séu aðeins tvö kyn, og að frjáls umræða um slík mál eigi að vera vernduð en ekki rangfærð eða mistúlkuð. Dómurinn taldi mig vera opinbera persónu og gaf RÚV þar af leiðandi meira svigrúm, en ég tel að þetta hafi ekki verið rétt mat.

Eftir samráð við lögmenn mína og samstarfsfólk hef ég ákveðið að áfrýja málinu til Landsréttar til að fá réttlæti og tryggja að slík brot á hlutleysi opinberra fjölmiðla verði ekki látin óátalin.

Ég þakka öllum þeim sem hafa stutt mig í þessu ferli og mun halda áfram að berjast fyrir gildum sem ég trúi á, þar á meðal frelsi til orðs og athafna.

Með virðingu,

Eldur Smári Kristinsson

Fara efst á síðu