Djöfulsins, helvítis, andskotans PAKK!

Sjálfur forseti Alþingis sem er einn af handhöfum forsetavalds lætur þetta út úr munni sér. Greinilega veldur hún ekki starfinu með slíku skapi að hún hatar stjórnmálaandstæðinga sína svona mikið. Það vill svo til eins og Mbl. ásamt fleirum hafa bent á að pakkið eru fulltrúar kjósenda í landinu og þingræði ríkir sem þýðir að æðsta embætti Alþingis á að fara til einstaklings sem kann að halda skapi sínu í skák, hversu rammar umræðurnar kunna að vera. Ef forseti þingsins í Svíþjóð yrði staðinn að því sama væri honum ekki lengur stætt á embættinu og annar skipaður í staðinn. 

Það vill svo til að Andreas Norlén forseti sænska þingsins er ljúfur maður, kærleiksríkur með dágóða kímnigáfu og hann hefur á undraverðan hátt staðið af sér mestu hremmingar í sögu sænska þingsins í stjórnarmyndunarkreppum síðustu áratuga. Allt hefur það orðið honum til sóma og Svíar að lokum fengið starfshæfa ríkisstjórn eftir miklar pólitískar sviptingar. 

Að bera saman Þórunni Sveinbjarnardóttir við Andreas Norlén er ekki hægt nema að bæði eru homo sapiens með hendur, fætur, nef og munn. Að öðru leyti er ekki hægt að gera neinn samanburð. Þau eru í sitt hvorum flokknum: flokki þeirra framúrskarandi og flokki þverbíta sem hafa allt á hornum sér. Sannleikurinn er sá að Þórunn Sveinbjarnardóttir veldur ekki þessu embætti og dregur skömm yfir bæði þing og þjóð. Opinber tilkynning breytir engu. Hún hefur fallið á prófinu. 

En eins og mórallinn er á stjórnmálaheimilinu, þá virðist allt leyfilegt. Ef upp komast svik eða hneykslismál, þá er viðkomandi í mesta lagi sendur í smá frí og kemur svo aftur til baka. Við Þórunni verður ekkert gert. Hún fær að blóta stjórnarandstöðunni áfram svo lengi sem hún passar sig að stjórnarandstaðan heyri það ekki. 

Stjórnarliðar senda mótherjum farmiða beina leið til helvítis svo stjórnarandstaðan tortímist. Svo sjúkleg er afstaða valkyrjuflokkanna að enginn má gagnrýna þá án þess að eiga á hættu að vera reknir úr embættum og rægðir, smáðir og ófrægðir í ríkisstyrktum rúvmiðlum. Morgunblaðið með eigin skoðun sett á bás þeirra fordæmdu sem ekki má tala við. Forseti Íslands áminnti þingheim við þingsetningu að íhuga þyrfti ritskoðun á Íslandi og stjórnarskrárbreytinga væri þörf. Allt hnígur í sömu átt. Ritskoðunarfasismi ESB er fyrirmyndin. 

Stjórnarstefna valkyrjustjórnarinnar er að eyðileggja lýðveldið. Ráðist er að fjöreggi þjóðarinnar á láði og legi og lífsbjörgum landans fórnað fyrir erlenda hagsmuni. Ísland hefur þvert á sögu og tungu orðið þátttakandi í erlendu stríði og landráðaákærð kona gerir landið undirgefið þýsk-evrópskri herstjórn sem undirbýr stríð við Rússa. 

Skiljanlega þolir slíkt fólk ekki sannleikann.

Fara efst á síðu