Bovaer hneykslið springur – stórt verkefni stöðvað

Bovaer-hneykslið hefur tekið nýja stefnu. Eftir margra mánaða hringingu viðvörunarbjallna um veikar og dauðar kýr er núna hætt við stórt verkefni og yfirvöld eru neydd til að bakka. Rótgrónir fjölmiðlar hafa neyðst til að viðurkenna það sem áður var stimplað sem „samsæriskenningar.“

Eftir margra mánaða viðvaranir, vitnisburði og ritskoðun á netinu eru vandamálin með loftslagsfóðrið Bovaer núna loksins viðurkennd, – jafnvel af rótgrónum yfirvöldum og fjölmiðlum. Í Danmörku hafa bændur fengið grænt ljós á að hætta að gefa fæðubótarefnið eftir að kýr veiktust alvarlega. Í Bretlandi hefur Arla hætt fóðurtilraunum sínum, að því er BBC greinir frá.

    Blaðamaðurinn PeterSweden skrifar á X (sjá að neðan):

    „STÓRFRÉTT – Dönsk yfirvöld leyfa bændum núna að hætta að gefa Bovaer ef þeir telja að kýr þeirra þjáist af Bovaer. Þetta eftir margar fréttir um kýr sem veikjast og drepast.“

    Um sögulega breytingu á fyrri stefnu er að ræða en í sumum dönskum loftslagsáætlunum voru bændur skuldbundnir að nota Bovaer í fóðurbæti, þrátt skort á dýrarannsóknum og mótmæli bænda.

    Rótgrónir fjölmiðlar neyðast til að segja frá því að kýr hafa drepist

    Það sem lengi var afgreitt sem samsæriskenning er núna orðið að frétt í helstu fjölmiðlum. BBC greinir frá því að dönsk yfirvöld hafi fengið röð viðvarana um hita, niðurgang, mjólkurmissi og dauðsföll hjá kúm sem fengu fæðubótarefnið. Háskólinn í Árósum hefur hafið rannsókn og er að safna sýnum frá viðkomandi bæjum.

    „Svo samsæriskenningasmiðirnir höfðu aftur á réttu að standa. Þetta drap kýrnar“ skrifar Bohemian Atmosphere í færslu á X:

    Framleiðandinn DSM-Firmenich fullyrðir að sannað sé að Bovaer sé „virkt og öruggt.“ Fréttir af dýrum sem geta ekki lengur staðið upp, hætta að borða og að deyja að lokum hafa núna neytt rótgróna aðila til að draga í neyðarbremsuna.

    Arla gerir hlé á Bretlandi

    Á sama tíma hefur Arla Foods lokið stórri tilraun með Bovaer á 30 breskum bæjum. Talsmaður staðfestir að niðurstöðurnar séu metnar núna áður en ákvörðun verður tekin um áframhaldandi notkun.

    Bóndinn og rökræðumaðurinn James Melville gagnrýnir hugmyndina á bak við loftslagsfóðrið. Hann skrifar á X:

    „Eftir 10-12 ár brotnar metanið niður í CO₂ og fer í náttúrulega hringrás með ljóstillífun. Það er sjálf skilgreiningin á sjálfbærni.“

    Hvernig gat þetta gerst?

    Þar sem fréttir hafa borist um tjón í mörgum löndum á meðan margra mánaða þögn ríkir í greininni, þá vaknar sú spurning, hvernig hægt var að samþykkja og innleiða Bovaer áður en grunnrannsóknum á dýrum var lokið.

    Gagnrýnendur benda á að það hafi ekki verið fyrr en almenningsálitið snerist við og neytendur fóru að sniðganga loftslagsmerkta mjólk sem yfirvöld neyddust til að hlusta.

    Fara efst á síðu