Austurríska lögreglan í kröggum: Hættir notkun rafbíla

Stórtæk rafbílavæðing austurrísku lögreglunnar hefur beðið alvarlegt áfall og nú liggur fyrir að rafbílar verða teknir úr almennum útkalls- og eftirlitsverkefnum. Áform sem kynnt voru sem græn bylting innan lögreglunnar hafa reynst standast illa kröfur daglegrar löggæslu.

Ákvörðunin kemur í kjölfar harðrar gagnrýni á meðal annars rafbílinn Volkswagen ID.4 sem hefur verið notaður sem útkallsbíll. Samkvæmt umfjöllun austurríska dagblaðsins Kurier telja lögreglumenn sig standa verr að vígi en glæpamenn á vegum úti. Þrátt fyrir að rafbílar séu þekktir fyrir snögga hröðun úr kyrrstöðu ná þeir ekki sambærilegum árangri á meiri hraða.

Volkswagen ID.4 er rafrænt takmarkaður við 160 kílómetra hámarkshraða á klukkustund, sem gerir lögreglu ókleift að elta uppi bíla á hraðbrautum. Í gegnum stéttarfélagið FSG hafa lögreglumenn lýst stöðunni sem „algjörlega óásættanlegri“ og benda á að jafnvel eldri dísilbílar geti ekið frá þeim þar sem þeir nái allt að 180 kílómetra hraða.

Án aðstoðar kollega í hefðbundnum bensín- og dísilbílum hafa lögreglumenn ítrekað þurft að hætta eftirförum þar sem rafbílarnir ráða ekki við meiri hraða. Mikil þyngd ökutækjanna og endurteknar harðar hemlanir í eltingarleikjum hafa einnig valdið vandræðum, þar sem bremsukerfið hefur ofhitnað. Sérstaklega hafa bremsur að aftan á Volkswagen ID.4 verið gagnrýndar, vegna þess hversu illa þær þola slíkt álag.

Þarf tvo rafbíla í stað eins bensín/dísil-bíls áður

Rafhlöður bílanna hafa auk þess reynst endast illa yfir heila vakt sem þýðir að lögreglusveitir þurfa annaðhvort að rjúfa vaktina til að hlaða bílinn eða fara aftur á stöðina og skipta yfir í fullhlaðinn bíl. Lögreglan hefur bent innanríkisráðuneytinu á að það sé „gríðarleg sóun á fjármagni að þurfa að úthluta tveimur bílum á hvert vaktateymi, einfaldlega vegna þess að annar bílanna sé stöðugt í hleðslu.“

Innanríkisráðherrann Gerhard Karner hefur nú staðfest við Kurier að rafbílarnir verði teknir úr eftirlits- og útkallsverkefnum eigi síðar en á árinu 2026. Lögreglan mun í staðinn snúa aftur að notkun dísil- og bensínbíla í aðgerðum sínum.

Rafbílarnir munu þó áfram gegna hlutverki innan embættisins, en þá eingöngu í stjórnsýsluverkefnum og þar sem úthald og hámarkshraði skipta minna máli.