Í nýju viðtali við Karl Gunnarsson flugstjóra í Kanada kemur fram, að fjárfestar í námu-, olíu-, skógar-, jarðgas- og stáliðnaði í Kanada hirða gróðann sem fer úr landi. Þótt ekki sé alveg ljóst, hvaða aðilar þetta eru – grunur leikur á Kínverjum að einhverju leiti, þá verður gróðanum af þessari auðlindanýtingu ekki fjárfest innanlands í Kanada, heldur fer beint í vasa alþjóða auðjöfra erlendis. Forsætisráðherra Kanada, Mark Karney er talinn fastur í djúpri spillingu og að hann sjálfur muni mata krókinn með yfir milljarði dollara.
Allar fjárfestingarnar skapa mikla tímabundna atvinnu en hængurinn er sá að hagnaðurinn stoppar ekki í Kanada heldur er fluttur úr landi. Kanadísku lífeyrissjóðirnir eru með í leiknum og uppleggið því kunnuglegt frá spilltum löndum eins og Úkraínu og einnig löndum eins og Svíþjóð og Íslandi. Það sem gagnrýnt er harkalega er aðkoma forsætisráðherrans og talið að hann muni græða á annan milljarð dollara á samningunum. Það má því segja að hann hagnist persónulega á því að selja út landið sitt.
Þessi grein verður uppfærð síðar
Hlustaðu á viðtal Gústafs Skúlasonar við Karl Gunnarsson flugstjóra í Kanada hér að neðan:
