Arnar Þór Jónsson

Arnar Þór Jónsson var á ESB-þinginu í síðustu viku og ávarpaði salinn í umræðum um stafræn skilríki. Hann skrifar á Facebook:

„Nú ætlar ríkisstjórn Íslands að selja Íslendingum hugmyndina um að okkur sé best borgið með því að framselja valdið, fullveldisrétt íslensku þjóðarinnar, til erlends, ólýðræðislegs skrifstofuveldis sem stendur á efnahagslegum og pólitískum brauðfótum.

Þótt ljóst sé að ESB muni beita bæði fjármagni og pólitískum þrýstingi er baráttan ekki fyrirfram töpuð ef Íslendingar vakna til vitundar um þá ábyrgð sem á okkur hvílir. Við fengum á 20. öld að verða frjáls þjóð í frjálsu landi, umráðamenn þessa stórkostlega lands okkar hér, fjarri vígaslóð heimsins, með dýrmætan lagalegan og bókmenntalegan arf, sem okkur ber að skila til síðari kynslóða. Engin þjóð í heiminum hefur fengið annan eins happdrættisvinning síðustu 100 árin – og ég vil ekki trúa því að Íslendingar hyggist kasta þessu frá sér í þeirri trú að auðveldara sé að bæta stjórn landsins með þvi að afhenda völdin óþekktum skrifstofumönnum í útlöndum en að taka sjálf þátt og taka sjálf ábyrgð á landinu okkar og framtíð þess.

Til að kynna mér starfshætti ESB nánar gerði ég mér ferð á Evrópuþingið í síðustu viku og fékk tækifæri til að ávarpa salinn í umræðum um stafræn skilríki (e. digital ID). Ávarp mitt má sjá á bloggsíðu minni í dag, sjá hlekk í fyrstu athugasemd. Ég benti á að Íslendingum hefði verið lofað að með EES hefðum við fengið aðgang að tollmúravörðum “innri markaði” meginlandsins, án þess að þurfa að framselja fullveldi okkar. Raunin hefur verið önnur og nú vinnur ríkisstjórnin að því að koma frumvarpinu um bókun 35 í gegnum Alþingi, þótt efni þess feli í sér framsal á ríkisvaldi í bága við stjórnarskrá okkar. Á sama tíma vill ríkisstjórnin í samstarfi við ESB lokka Íslendinga til að ganga í gin ljónsins, þótt ljóst sé að Íslendingar fái engar sérstakar undanþágur og í mesta lagi aðlögunarfresti gagnvart ríkjasambandi sem hefur engin áhrif á alþjóðasviðinu og veitir aðildarríkjum sínum enga vörn, eins og kristallaðist á fundi Trump með Merz fyrr í þessari viku þegar því var lýst yfir að USA myndi loka á viðskipti við Spán.

Kæru lesendur, það er kominn hábjartur dagur, og stöðugt fleiri eru að opna augun fyrir því sem er að gerast. Í dag er góður dagur til að vakna.”