Alþjóðahyggjan eru dýr mistök Vesturlanda

Howard Lutnick, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, er í Davos og sagði í pallborðsumræðum (sjá YouTube að neðan), að alþjóðavæðing með úthýsun starfa erlendis, fremst til landa með ódýru vinnuafli, væru mistök. Áheyrendur fengu fyrirlestur um alvöru fullveldi, þar sem sjálfstæði þjóðar byggist á því að hún geti séð um sig að mestu sjálf en sé ekki upp á aðra komin með til dæmis lyf eða orku. Ráðherrann tók Evrópusambandið sem dæmi um slík mistök: Það samþykkir nettó-núll losun fyrir árið 2030 en framleiða engar rafhlöður sjálfir.

Howard Lutnick, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, hélt því fram að alþjóðavæðingin hefði verið misheppnuð fyrir Vesturlönd. Hann sagði:

„Þetta er misheppnuð stefna sem Alþjóðaefnahagsráðið (WEF) hefur staðið fyrir.“

Hugmyndin var að leita uppi ódýrasta vinnuaflið, svo heimurinn yrði betri. En þetta hefur skaðað Bandaríkin og bandaríska verkamenn, að sögn Lutnick:

„Við erum hér til að segja að „Ameríka fyrst“ sé önnur fyrirmynd, sem við hvetjum önnur lönd til að íhuga. Verkamenn okkar koma fyrst.“

Þjóðarmörk þýða fullveldi og það á ekki að úthýsa allri framleiðslu.

„ Maður á að vera sjálfum sér nægur. Það er grundvallaratriði fyrir fullveldið.“

Viðskiptaráðherrann bendir á að ríkisstjórn Trumps hefur allt aðra nálgun en Alþjóðaefnahagsráðið. Hann ræddi um fjárfestingar ESB, þegar kemur að svo kölluðum grænum umskiptum.

„Þetta er annar hugsunarháttur. Þetta er gjörólíkt WEF. Ég sé ekki WEF sem fánastöng í miðjunni, en staðreyndin er sú að þeir eru fáninn, útskýrði Howard Lutnick nánar. Í hvaða átt sem vindurinn blæs, þá blæs hann. Þið verðið að hafa sólarsellur, þið verðið að hafa vindorku! Af hverju eruð þið að nota sólarorku og vindorku? Af hverju er ESB að samþykkja nettó núll fyrir árið 20230, þegar þau búa ekki til rafhlöðu!? Þau búa ekki til rafhlöðu! Svo þegar þau samþykkja árið 2030, þá samþykkja þau að gerast háð Kína, sem býr til rafhlöðurnar! Af hverju myndu Bandaríkin, sem hafa olíu og jarðgas, reyna að skipta bara yfir í rafmagn? Kína hefur ekki olíu og jarðgas, rafmagn og rafmagnsbílar eru skynsamlegir fyrir þá. Það er hagnýtt og rökrétt.“

Fara efst á síðu