Alþjóðaefnahagsráðið kemur á ríkisbúskap í stað frjáls markaðar

Aukinn ríkisbúskapur eða öllu frekar beinharður sósíalismi er afleiðingin af Davos-áætluninni

Desiree Fixler er með BSc gráðu í hagfræði frá London School of Economics, LSE og fyrrverandi meðlimur í Global Future Council on Responsible Investments hjá World Economic Forum, þar sem hún vann á fullu við að koma á Hagsmunaaðilakapítalisma „Stake holder capitalism“ á Vesturlöndum. En hún sá í gegnum svindlið og gerðist uppljóstrari í staðinn og er nú mikill nagli í augum glóbalistanna fyrir þær afhjúpanir sem hún hefur gert.

Í viðtalinu að neðan lýsir hún hvernig hún komst að svikum Dautsche Bank, þar sem hún var yfirmaður „haldbærra fjárfestinga.“ Það var upphafið að því stríði gegn ríkiskapítalismanum sem hún stundar núna með fyrirlestrum um allan heim í dag. Ríkisbúskapur hagsmunaaðilakapítalismans með núll losun og kvótun einstaklinga í stjórnir fyrirtækja sem ekki miðast við hæfni þeirra er ekkert annað en gamall sósíalismi í nýjum búningi.

Á afgerandi augnabliki í starfi sínu sem framkvæmdastjóri haldbærra fjárfestinga hjá eignastýringarfyrirtæki Deutsche Bank, DWS, afhjúpaði Desiree verulegan grænþvott hjá fyrirtækinu sem birtist í gríðarlegu misræmi milli opinberra fullyrðinga ESG-kerfisins, Environmental, Social and Governance, samanborið við árangur fjárfestinganna. Vegna innri gagnrýni hennar var hún rekin úr störfum svo Deutsche Bank gæti birt upplogna ársskýrslu út frá pólitískum rétttrúnaði í stað talna raunveruleikans. Desiree ákvað þá að tjá sig opinberlega. Síðari rannsóknir bandarískra og þýskra yfirvalda leiddu til dramatískra atburða, þar á meðal húsleitar hjá alríkislögreglunni, brottrekstri æðstu stjórnenda og stærstu viðurlögum við grænpeningaþvotti frá bandaríska verðbréfaeftirlitinu og þýskum saksóknara til þessa.

Desiree Flixer er þekkt fyrir að afhjúpa dökku hliðarnar á núll-losun fjárfestinga í hagkerfinu og er í dag eftirsóttur fyrirlesari, fjölmiðlafulltrúi og ráðgjafi. Hún starfar sem traustur ráðgjafi fjármálastofnana og eftirlitsaðila, þar á meðal bresku fjármálaeftirlitsstofnunarinnar, Financial Conduct Authority, og peningamálastofnun í Singapúr. Auk þess að halda gestafyrirlestra við leiðandi háskóla heillar hún áhorfendur með sérstakri innsýn sinni og ómengaðri frásögn sannleikans í leit að því að endurheimta traust á fjármálamörkuðum. Hún skrifar á heimasíðu sinni:

„Markmið mitt er að útrýma ESG og DEI úr viðskiptalífinu. Fyrirtæki ættu að einbeita sér að kjarnahæfni sinni, ekki félagslegum og umhverfislegum pólitískum áformum.“

Fara efst á síðu