Allar stóru sjónvarpsstöðvarnar – nema Fox – ritskoðuðu ræðu Trumps – klipptu burtu skýringarmyndir

Fox News var eina sjónvarpsstöðin sem sýndi skýringarmyndir sem Hvíta húsið útbjó með ræðu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á miðvikudag, þar sem aðallega var fjallað um efnahagsmál.

Brian Stelter hjá CNN sagði (sjá X að neðan):

„að samskiptateymi Trumps deildi glærum fyrir fram til helstu sjónvarpsstöðva og hvatti stöðvarnar til að sýna þær á skjánum, samkvæmt þremur fréttastjórnendum sem létu ekki nafn síns getið.“

Engin af stóru þremur sjónvarpsstöðvunum [ABC, NBC, CBS] notaði glærurnar og ekki heldur CNN. Ástæðan er sögðu vera sú að „skýrar upplýsingar um heimildir fylgdu ekki með.“ Stelter benti á að Fox sýndi ekki allar glærurnar og setti merkingu á þær sem það sýndi, þar sem stóð „Mynd úr Hvíta húsinu.“ Sean Hannity, sjónvarpsþáttastjórnandi Fox News, sýndi nokkrar viðbótarmyndir í greiningu sinni eftir ræðuna.

Kevin Hassett, forstöðumaður Þjóðhagsráðs Trumps, ræddi þá ákvörðun sjónvarpsstöðvanna að sýna ekki myndir Hvíta hússins í þættinum „Morning Joe“ á MS Now. Hann sagði:

„Forsetinn eyddi miklum tíma með okkur, með teyminu okkar, að undirbúa glærur sem sýndu gögnin um það sem hann var að tala um í ræðunni til að tryggja að allir skildu staðreyndirnar og að þær væru skjalfestar. Sumar sjónvarpsstöðvarnar sýndu glærurnar meðan hann talaði – aðrar ekki. Ég bjóst við að sjá glærurnar alls staðar þegar ég fletti á milli stöðva.“

Töflurnar birtar í YouTube-streymi forsetans

Forsetinn hóf ræðu sína með því að segja:

„Fyrir ellefu mánuðum erfði ég óreiðu og ég er að laga hana. Þegar ég tók við embætti var verðbólgan sú versta í 48 ár og sumir myndu segja í sögu landsins okkar, sem olli því að verð var hærra en nokkru sinni fyrr og gerði lífið óviðráðanlegt fyrir milljónir Bandaríkjamanna …

„Við erum að taka hagkerfi okkar til baka frá barmi gjaldþrots. Síðasta stjórn og bandamenn þeirra á þinginu rændu trilljónum dollurum úr ríkissjóði okkar, keyrðu upp allt verð á líkt stig sem aldrei hefur sést áður. Ég er að lækka þessi háu verð og lækka þau mjög hratt. Við skulum skoða staðreyndirnar. Undir stjórn Bidens hækkaði bílaverð um 22% og í mörgum ríkjum 30% eða meira.“

„Bensín hækkaði um 30 – 50%. Hótelverð hækkaði um 37%. Flugfargjöld hækkuðu um 31%. Núna undir forystu okkar lækkar þetta allt og það hratt. Stjórnmálamenn Demókrata ollu einnig hækkun matvöruverðs og við erum einnig að leysa það. Verð á kalkúni á Þakkargjörðarhátíðinni lækkaði um 33% samanborið við [verðið á stjórnartíma Bidens] í fyrra. Verð á eggjum hefur lækkað um 82% frá því í mars og allt annað lækkar hratt og þessu er ekki lokið enn. En sjáið til, við náum árangri. Enginn getur trúað því sem er í gangi.“

Á fimmtudaginn var vísitala neysluverðs lægri en búist var við í nóvember, samanborið við sama tímabil árið áður, en hún var þrjú prósent í september. Engin skýrsla er tiltæk fyrir október vegna lokunar ríkisins.

Hinn látni forseti Ronald Reagan – þekktur sem „samskiptamaðurinn mikli“ – notaði skýringarmyndir í sumum af ræðum sínum til almennings – sérstaklega þegar hann talaði um efnahagsmál.

Fara efst á síðu