CNN: Stuðningur jókst við Donald Trump á meðan hann flutti ríkisræðuna

trumptal

Eftir ríkisræðu Trumps um ástand þjóðarinnar, gerði CNN hraðkönnun og komst að því að Trump fékk aukinn stuðning á meðan hann hélt ræðuna. Demókratar eru niðurbrotnir. 64% áhorfenda töldu að stefna Bandaríkjastjórnar leiði Bandaríkin í rétta átt. Demókratar bauluðu og urðu sjálfum sér til skammar á þinginu. Gátu ekki tekið þátt í neinu sameiginlega fyrir þjóðina. Sýndu að þeir eiga ekki heima á bandaríska þinginu.

Washington Examiner greinir frá:

Samkvæmt hraðkönnun CNN náði ræða Donalds Trump forseta um ástand þjóðarinnar á þriðjudagskvöldið til yfir 60% sjónvarpsáhorfenda í besta sjónvarpstíma.

Könnunin, sem SSRS framkvæmdi, sýndi að 64% svarenda höfðu mjög eða frekar jákvæð viðbrögð við ræðu Trumps, sem stóð yfir í næstum tvær klukkustundir. 36% sögðust hafa neikvæð eða mjög neikvæð viðbrögð.

Jákvæðari fréttir fyrir Trump voru þær að 64% sögðust hafa mikið eða töluvert traust á getu Trumps til að veita landinu „raunverulega forystu“ samanborið við 35% sem sögðust ekki hafa neitt traust.

Könnunin leiddi einnig í ljós að 64% telja að stefnan sem Trump lagði fram muni færa landið í rétta átt en önnur 36% sögðu að stefnan myndi leiða þjóðina í ranga átt.

Í ræðu sinni hvatti Trump löggjafann til að banna stofnanafjárfestum að kaupa einbýlishús. Hann bað þingmenn einnig um að staðfesta tilskipun sína sem veitir þjóðinni besta verð á lyfseðilsskyldum lyfjum. Forsetinn studdi studdi einnig aðgerðir gegn innri viðskiptum þingmanna en til dæmis Nancy Pelosi hefur orðið forrík sem þingmaður demókrata og forseti þingsins vegna innherjaupplýsinga um hlutabréf að því talið er.