ÞETTA ER ÓGEÐSLEGT

Birgir Eiríksson ræddi um afleiðingar Covid-bólusetninga: „Þetta er alveg skelfilegt“

Í viðtali hjá Gústafi Skúlasyni á Þjóðólfi ræddi Birgir Eiríksson, skrúðgarðyrkjumeistari og tónlistarmaður, um fund sem haldinn var á Hótel Reykjavík Natura þar sem einstaklingar sögðu frá reynslu sinni af meintum skaða eftir Covid-bólusetningar.

Birgir sagði fundinn hafa verið fjölmennan og að þar hefðu bæði erlendir og íslenskir fyrirlesarar lýst alvarlegum heilsufarsvandamálum sem þeir telja tengjast bólusetningunum meðal annrars meinta aukningu krabbameins eftir Covid-bólusetningar.

Ute Krüger

Birgir ræddi meðal annars um sænska hjúkrunarfræðinginn Ute Krüger sem starfað hefur við krabbameinsrannsóknir í Svíþjóð. Greindi hún frá því að hún hafi orðið vör við aukningu alvarlegra krabbameinstilfella eftir að Covid-bólusetningar hófust. Birgir sagði:

Ute Krüger

„Hún var að segja frá því eins og margir læknar hafa talað um opinberlega að þá hafi komið mikil aukning á krabbameinstilfellum og mjög alvarlegum krabbameinstilfellum.“

Hann ræddi einnig um svokallað „turbo-krabbamein“ sem hann sagði þróast mjög hratt eftir bólusetningar og sagði frá íslenskum dæmum.

Í þættinum var rætt um íslenska einstaklinga sem sögðu frá veikindum innan fjölskyldna sinna eftir bólusetningar. Birgir nefndi sérstaklega sögu ungrar konu sem hafi veikst alvarlega eftir tvær Pfizer-sprautur.

„Þetta er alveg skelfilegt hvernig þessum bólusetningum hefur verið haldið að fólki“ sagði Birgir. Hann gagnrýndi jafnframt heilbrigðisyfirvöld og sagði að fólk sem gagnrýndi bólusetningarnar hefði orðið fyrir miklum árásum og útilokun.

Ræddu um rannsóknir og lækna í Bandaríkjunum

Birgir sagði einnig frá ferð sinni til Bandaríkjanna þar sem hann hitti lækna og rannsakendur sem gagnrýnt hafa Covid-bólusetningar, þar á meðal hjartalækninn Peter McCullough. Að sögn Birgis rannsakaði McCullough og samstarfsfólk hans áhrif bólusetninga á hjarta- og æðakerfið og var upplýsingum safnað frá sjúklingum víða að úr heiminum.

„Það er eins og ríkið sé bara að ljúga, sagði Birgir þegar rætt var um opinbera umræðu um bólusetningarnar.

Tónlist og samfélagsgagnrýni

Undir lok viðtalsins ræddu þeir Gústaf og Birgir einnig tónlist, en Birgir sagðist hafa samið yfir 1200 lög og verið afar afkastamikill undanfarna mánuði.

Þeir ræddu jafnframt lag Birgis „Þetta er ógeðslegt“ sem byggir á ummælum Styrmis Gunnarssonar fv. ritstjóra Morgunblaðsins um spillingu og valdhroka í samfélaginu.

„Það er eins og vont geti alltaf orðið verra“ sagði Birgir í lokin.