„Verið að útrýma Úkraínu“ samkvæmt fv. fjölmiðlafulltrúa Zelenskys

Verið er að útrýma Úkraínu segir fyrrverandi fjölmiðlafulltrúi Zelenskys í löngu og afhjúpandi viðtali við Tucker Carlson.

Blaðamaðurinn Tucker Carlson hefur birt tæplega tveggja tíma langt viðtal við fyrrverandi fjölmiðlafulltrúa Zelenskys. Hún lýsir vægast sagt annarri mynd af því sem er að gerast í Úkraínu en sú sem hefðbundnir fjölmiðlar draga upp.

Samkvæmt henni er Zelensky allt annar maður þegar hann stendur ekki fyrir framan myndavélarnar. Hún segir að hann geti ekki stjórnað tilfinningum sínum en sé engu að síður mjög hæfileikaríkur leikari.

Úkraína er beinlínis á leiðinni að þurrkast út, að hennar mati:

„Ég held ekki að Úkraína sé aðeins að eyðileggjast. Ég held að verið sér að útrýma Úkraínu.“

„Vissir þú að það var í raun Úkraínumaður sem stóð á bak við verkefnið að senda fyrsta manninn út í geim? Nú geta börn í fjórða bekk í Kharkiv-héraði ekki lesið. Landið mitt er að hrynja saman.“