Eftir fjöldainnflutninginn kemur fjöldaeftirlitið

Móderatarnir í Svíþjóð hafa ásamt sósíaldemókrötum verið einn helsti drifkraftur að baki þeirri innflytjendastefnu sem hefur leitt til umfangsmikillar glæpastarfsemi og óöryggi almennings í Svíþjóð undanfarin ár. Núna ætla þeir koma á stórlega auknu fjöldaeftirliti með myndavélum út um alla Svíþjóð. Nýtt kosningaloforð móderata er að stórauka myndavélaeftirlit lögreglunnar upp í 10.000 eftirlitsmyndavélar í Svíþjóð fyrir árið 2030.

Tilkynnt var um þetta á mánudag í tengslum við kosningaferðalag forsætisráðherrans Ulfs Kristerssons og dómsmálaráðherrans Gunnars Strömmer til Suður-Svíþjóðar. Núverandi markmið ríkisstjórnarinnar er að setja upp að minnsta kosti 5.000 eftirlitsmyndavélar fyrir lok næsta árs og að talan tvöfaldist fyrir árið 2030. Í lok árs 2025 voru samtals 3.916 fastar og færanlegar eftirlitsmyndavélar í Svíþjóð.

„Þetta er algjörlega nauðsynlegt“ segir dómsmálaráðherrann Gunnar Strömmer.

Eftirlitið verður í mismunandi tækniútfærslum eins og föstum myndavélum, færanlegum einingum, drónum og NPR-kerfum sem gera lögreglunni kleift að bera sjálfkrafa kennsl á bílnúmer í rauntíma.

Samkvæmt eigin útreikningum móderata á tvöföldun á fjölda eftirlitsmyndavéla kosta um tvo milljarða sænskra króna.

Árangursríkt gegn glæpum

Skýrsla frá sænska glæpavarnarráðinu Brå, Brottsförebyggande rådet, frá árinu 2018 sýnir að myndavélaeftirlit geti verið árangursríkt gegn skipulögðum brotum, svo sem innbrotum, skemmdarverkum og fíkniefnabrotum. Hins vegar er talið að áhrifin gegn ofbeldisbrotum séu takmörkuð. Gunnar Strömmer segir:

„Mikilvæg skýring á því að alvarleg brot upplýsast er að nú hefur maður aðgang að tæknilegum sönnunargögnum sem voru ekki til áður. Þau fær maður með myndavélunum.“